Forystumenn í Sjálfstæðisflokknum krefjast hreingerninga

Gríðarleg reiði er meðal forystumanna í Sjálfstæðisflokknum um land allt vegna styrkja sem flokkurinn þáði frá FL Group og Landsbankanum árið 2006. Reiðin endurspeglar þá hneykslan sem er meðal almennra flokksmanna. Þess er krafist að gengið verði hreint til verks og þeir sem ábyrgð bera axli hana.