Kýst þú með hausnum eða hjartanu?
Í dag vona ég að flestir Íslendingar hafi kynnt sér vel og vandlega stefnu allra flokka í öllum málaflokkum og að skynsemin muni bera tilfinningarnar ofurliði.
Framsóknarmenn vilja róttækar aðgerðir í efnahagsmálum til að koma í veg fyrir kerfishrun og halda okkur á floti í gegnum verstu brimskaflana.
Á sama tíma viljum við hefja aðildarviðræður við ESB á grundvelli samningsmarkmiða til að tryggja stöðugleika þegar til lengri tíma er litið.
Við viljum verja þau störf sem þegar eru til og skapa ný fjölbreytt atvinnutækifæri. Nú er ekki tími til að velta því fyrir sér hvort við eigum að nýta náttúruauðlindirnar til þess.
Við viljum verja velferðarkerfið og þau störf sem þar eru unnin. Uppsagnir hjá hinu opinbera eru ávísun á reikning sem kemur bakdyramegin inn í ríkiskassann í formi atvinnuleysisbóta.
Við viljum ekki skattahækkanir því flestir eiga nóg með verðbólgu, verðbætur, afborganir og framfærslu fjölskyldunnar. Þangað er ekkert að sækja.
Við viljum stjórnlagaþing þar sem þjóðin setur sér nýja stjórnarskrá og leiðréttir "kerfisvillur" sem skapað hafa stjórnmálaflokkunum of mikil völd.
Við viljum að eignarhald þjóðarinnar á auðlindum hennar verði staðfest með ákvæði í stjórnarskrá og setjast að samningaborði með útgerðinni til að finna sanngjarna og réttláta lausn á nýtingarrétti hennar á fiskveiðiauðlindinni.
Við viljum sanngjarnara samfélag, réttlátara Ísland og umfram allt berum við hag þjóðarinnar fyrir brjósti.
Grasrót framsóknarmanna skipti um forystu til að svara kallinu um nýliðun, nýja hugmyndafræði og ný vinnubrögð í stjórnmálum. Framboðslistar eru þess vegna að megninu til skipaðir nýju fólki, vaskri sveit sem vill beita sér fyrir siðbót og sanngirni í íslenskum stjórnmálum.
Ég vona að þú eigir samleið með okkur.
- Login or register to post comments
- Feed: Helga Sigrún Harðardóttir
- Original article