Útgáfa af Leynifélagið Stím frá 16. janúar 2009 - 15:29
Margt hefur verið skrafað og skrifað um félagið Stím sem stofnað var í fyrra og keypti stóra hluti í Glitni og FL Group á síðasta ári. Hafa margir talið að hér sé um mikið leynifélag að ræða sem notað hafi verið til þess að véla með verð á hlutum í Glitni og FL Group. Morgunblaðið birti langa fréttaskýringu eftir Agnesi Bragadóttur þar sem böndin voru talin berast til Jóns Ásgeirs og Hannesar Smárasonar, sem að sögn stóðu að stofnun einkahlutafélagsins FS 37 ehf. sem síðar var breytt í Stím ehf. Síðar bárust af því fréttir að Pálmi Haraldsson í Fons hefði stofnað FS 37 ehf. og lánað til þess félags fé frá öðru einkahlutafélagi úr hans röðum, FS 38 ehf.
Útgáfa stjórnarformannsins
Fjölmiðlum barst yfirlýsing frá stjórnarformanni Stím ehf., laugardaginn 29. nóvember 2008. Vildi stjórnarformaðurinn með yfirlýsingu sinni leiðrétta ranga umfjöllun fjölmiðla um málefni einkahlutafélagsins:
Vegna mikillar og oft rangrar umfjöllunar fjölmiðla um málefni einkahlutafélagsins Stím ehf. sé ég mig knúinn til að upplýsa um mína eignaraðild og aðkomu að félaginu. Jafnframt hef ég fengið leyfi annarra hluthafa félagsins til að opinbera hluthafalista Stím ehf.
Stím ehf. var stofnað 16. nóvember 2007. Í samþykktum félagsins kemur fram að tilgangur félagsins sé eignarhald, umsýsla, kaup og sala verðbréfa ásamt lánastarfsemi og öðrum tengdum rekstri. Ég hef gegnt stjórnarformennsku í félaginu frá upphafi og er í dag einn í stjórn þess. Samtals á ég 7,5% hlut í Stím ehf. sem ég greiddi fyrir með reiðufé á sínum tíma. Ég vil taka það fram og ítreka að ég fékk ekki lánafyrirgreiðslu fyrir hlutafénu. Ég greiddi hlutaféð með eigin fjármunum. Þetta viðskiptatækifæri var kynnt fyrir mér af starfsmönnum Glitnis og mér boðin þátttaka ásamt fleiri fjárfestum.
Hlufhafalisti Stím ehf:
32,5% Félag stofnað af gamla Glitni sem ætlað var til endursölu
15% Gunnar Torfason
10% SPV fjárfesting hf.
10% BLÓ ehf. - félag að fullu í eigu Óskars Eyjólfssonar
10% Ofjarl ehf. – félag að fullu í eigu Jakobs Valgeirs Flosasonar og Ástmars Ingvarssonar
8,75% Viðskiptavinir Saga Capital fjárfestingabanka
6,25% Saga Capital fjárfestingabanki
2,5% Jakob Valgeir Flosason
2,5% Ástmar Ingvarsson
2,5% Flosi Jakob Valgeirsson.Stím ehf. keypti hluti í FL Group og Glitni við stofnun fyrir samtals 24,8 milljarða króna. Félagið keypti 3,8% hlut í FL Group fyrir 8,4 milljarða króna og 4,3% hlut í Glitni fyrir 16,4 milljarða króna. Glitnir lánaði félaginu samtals 19,6 milljarða króna vegna kaupanna, eða tæp 80%, sem er sambærilegt hlutfall og boðið var í framvirkum samningum hjá bönkum á þessum tíma. Glitnir var með tryggingu í öllum bréfunum. Lánið var kúlulán til tólf mánaða með 20,15% óverðtryggðum vöxtum og 1% lántökugjaldi.
Ég samþykkti að taka þátt í þessari fjárfestingu líkt og aðrir hluthafar og batt vonir við að bréf í bæði FL Group og Glitni sem höfðu lækkað mikið, myndu hækka umtalsvert á næstu tólf mánuðum. Þetta var í samræmi við væntingar á markaði á þessum tíma. Þessar væntingar gengu ekki eftir og hef ég tapað öllu því hlutafé sem ég lagði inn í Stím ehf.
Margar rangar fullyrðingar sem settar hafa verið fram í þessu máli snúa bæði að mér persónulega og félaginu.
Stím ehf. er ekki leynifélag. Félagið var myndað af hópi fjárfesta og í einu og öllu var stofnað til þess samkvæmt íslenskum lögum. Því hefur verið haldið fram að ég hafi fengið greitt fyrir að ljá félaginu nafn mitt. Þetta er alfarið rangt og ég setti eigin fjármuni í Stím ehf.
Ég undrast að bankaleynd í þessu máli hafi verið brotin og það svo gróflega sem raun ber vitni. Það eru mikil vonbrigði. Þetta hlýtur að vera öllum þeim sem stunda fjárfestingar og viðskipti hjá bankastofnunum mikið áhyggjuefni.
Í ljósi þessa hef ég ákveðið að upplýsa um lánastöður fyrirtækja í minni eigu að öllu leiti eða hluta sem eru í viðskiptum við Landsbankann. Samtals er um að ræða sjö fyrirtæki og þar á meðal er fiskvinnslufyrirtækið Jakob Valgeir ehf. sem er einn stærsti atvinnurekandi á Bolungarvík. Um er að ræða erlend lán og miðað við gengi íslensku krónunnar nema lán þessara félaga nú rúmlega 19 milljörðum króna. Fyrir einu ári námu þessar skuldir rúmum 8,5 milljörðum króna. Skuldir þessara félaga hafa því hækkað um rúma 10 milljarða króna á einu ári vegna gengisþróunar.
Að lokum vil ég segja að mér finnst fjölmiðlar hafa farið afar frjálslega með staðreyndir þegar kemur að Stím ehf. og minni persónu í tengslum við félagið. Ég hefði viljað komast hjá því að tjá mig opinberlega um mín persónulegu fjármál en tel mig tilneyddan til þess eftir þær rangfærslur sem ítrekað hafa verið settar fram. Ég óska jafnframt eftir því að einkalíf mitt og minnar fjölskyldu njóti þeirrar friðhelgi sem almennt er talið eðlilegt.
Reykjavík 29. nóvember
Jakob Valgeir Flosason, stjórnarformaður Stím ehf.
Útgáfa Morgunblaðsins
Morgunblaðið birti í sunnudagsblaði sínu umfangsmikla fréttaskýringu þar sem meðal annars voru birtar upplýsingar úr lánabók Glitnis. Á mbl.is birtist þessi frétt um greinina þann 22. nóvember 2008:
Helstu stjórnendur Glitnis ásamt fulltrúum stærsta hluthafans í Glitni, FL Group, brutu allar verklagsreglur við lánveitingar í nokkrum tilvikum í fyrrahaust. Þetta kemur fram í fréttaskýringu Agnesar Bragadóttur í sunnudagsblaði Morgunblaðins.
Fram kemur, að lánveitingar upp á marga tugi milljarða króna voru ákveðnar af örfáum mönnum án þess að áhættumat færi fram eða að um þær væri fjallað í lánveitinganefnd bankans. Líklegt er talið að krafist verði opinberrar rannsóknar á viðskiptunum.
Í fréttaskýringunni er m.a. rakið laumuspil Glitnis með helstu eigendum FL Group sem gekk út á viðskipti með bréf í FL Group þar sem Glitnir var seljandi og laumufélag, FS37 ehf., með leynieigendur á vegum stærstu hluthafanna var kaupandi.
Fram til 15. nóvember í fyrra hafði Glitnir verið að kaupa öll bréf í FL Group sem voru á markaði til þess að reyna að halda uppi gengi bréfa í FL Group og þegar FS37 ehf. keypti 4,11% í FL Group var Glitnir banki kominn með 3,59% hlut í FL. FS37 fékk síðar nafnið Stím.
Jón Ásgeir Jóhannesson og Lárus Welding voru þrjár mínútur sléttar að svara ásökunum Agnesar með yfirlýsingum.
Óunnið vegna þessarar fréttaskýringar
Ljúka frásögninni, fullt af öðrum fréttum hafa birst sem þétta efnið. Stytta tilvitnanir niður í það sem máli skiptir - birta jafnvel í bútum í tengslum við umfjöllun á ýmsum stöðum. Flytja upplýsingar um eigendur yfir í tengslanet > stím. o.fl.