“Einsdæmi í samskiptum ríkja”

Meðferð embættis forseta Íslands á Carol van Voorst, fráfarandi sendiherra Bandaríkjanna, sætir furðu. Eiður Guðnason, fyrrverandi sendiherra, segir uppákomuna, varðandi afturköllun orðuveitingar, einsdæmi í samskiptum ríkja. Forsetaritari hefur tekið ábyrgð á málinu en ekki verður annað séð en forsetinn hafi haft fulla heimild til að veita orðuna og með því hefði mátt koma í veg fyrir uppákomuna.