Haltu kjafti?
Eitthvað segir mér að þessi frétt sé til þess skrifuð að reyna að þagga niður í þeim armi VG sem vill ganga lengra og fara í róttækar aðgerðir fyrir heimilin í landinu. Sá armur kynnti sínar lausnir í vikunni. Þær hafa ekki náð eyrum fólks eða fjölmiðla en mbl.is gerði þeim þó skil.
Hef heimildir fyrir því að þessi málefnahópur VG hafi fengið skömm í hattinn fyrir að skemma fyrir stjórnarmyndunarviðræðum með því að leggja fram hugmyndir sem Samfylkingin hafnaði áður en hún las þær. Athyglivert í ljósi þess að fjármálaráðherrann Steingrímur J (arðfræðingur) er í þann mund að verða valdamesti maður landsins.
Því miður virðist ekkert nýtt í farvatninu í þinginu. Sama hugmyndafræði, sömu vinnubrögðin og sama óhugnanlega valdapotið og undanfarin ár og áratugi. Það hefur ekkert breyst gott fólk... valdið er enn sætt.
- Login or register to post comments
- Feed: Helga Sigrún Harðardóttir
- Original article