Skýr svör forsætisráðherra vegna Evu Joly

Í dag  beindi ég fyrirspurn til forsætisráðherra vegna ummæla Evu Joly, ráðgjafa sérstaks saksóknara í Kastljósinu í gærkvöldi.  Þar kom fram að hún teldi rannsókn á bankahruninu í uppnámi vegna þess að ekki væru veittir nægjanlegir fjármunir í rannsóknina.  Sagðist hún jafnframt ekki myndu leggja nafn sitt við áframhaldandi vinnu ef úr þessu yrði ekki bætt. 

Ég tel afar mikilvægt að taka þessar athugasemdir Evu Joly  alvarlega enda nýtur hún trausts bæði innan lands og utan fyrir störf sín.  Það er mjög brýnt að nýta krafta hennar og reynslu og það er ljóst að margir binda miklar vonir við störf hennar.  Hún telur rannsóknina á íslenska bankahruninu einhverja þá mikilvægustu rannsókn allra tíma í Evrópu og því ljóst að hér eru gríðarlegir hagsmunir í húfi.    Hún telur jafnframt nauðsynlegt að ríkissaksóknari viki með öllu vegna vanhæfis og  því vil ég jafnframt spyrja hæstvirtan ráðherra um skoðun hennar á því máli.

Það er ljóst að það er mikil tortryggni í samfélaginu og þessi rannsókn á bankahruninu er liður í því að byggja aftur upp traust milli manna í okkar ágæta samfélagi.  Hér mun aldrei nást sátt eða að hægt verði að byggja aftur upp traust nema þeir sem sökina bera verði fundnir og sóttir til saka.  Almenningur treystir Evu Joly og því er það mín skoðun að við eigum að gera allt sem við getum til að tryggja henni þá starfsaðstöðu sem hún telur ásættanlega fyrir framgang rannsóknarinnar. 

Spurning mín til forsætisráðherra var því einföld - hvað hyggst hæstvirtur ráðherra gera í málinu?

Forsætisráðherra var afar skýr í sínu svari og sagði að ríkisstjórnin myndi gera allt sem í hennar valdi stæði til að koma til móts við óskir Evu Joly og að auki lýsti Jóhanna þeirri skoðun sinni að ríkissaksóknara bæri að víkja.

Þetta eru afgerandi skilaboð um málið og verður vonandi til þess að starf Evu Joly og félaga getur gengið áfram.  Við þurfum á því að halda.