Gift - Samvinnutryggingar

Almenn færsla undir "tengslanet" um tilurð félagsins og heildaryfirlit yfir eignir. Þessi færsla er um tengslin og misnotkunina.

 

Hlutafélagið Gift var stofnað til þess að ráðstafa til rétthafa Samvinnutrygginga eignum félagsins við slit Eignarhaldsfélags Samvinnutrygginga. Sagt var frá því sumarið 2007 að félagið ætti uþb 30 ma sem myndu ráðstafast til rétthafanna, rétt rúmu ári síðar skilaði skilanefnd eignarhaldsfélagsins umboði sínu til fulltrúaráðs þess sem fór með völdin í eignarhaldsfélaginu sökum þess að skilanefndin taldi engar eignir til staðar til þess að ráðstafa til rétthafanna. Á svipuðum tíma var greint frá því að Gift skuldaði 30ma umfram eignir.

 

Óunnið vegna þessarar fréttaskýringar

Skrifa heillegan texta úr öllum þeim vísbendingum sem hér eru þegar komnar og finna viðeigandi efni til þess að fylla inn í það sem á vantar.

 

Tengja fréttir af notkun S-hópsins á fjármunum Samvinnutrygginga, t.d. við kaupin á Búnaðarbankanum og við Langflug, eignarhaldsfélag um eignarhlut í Icelandair, þar sem Finnur Ingólfsson græddi á kostnað eignarhaldsfélagsins.

 

finna fréttir og reyna að ná utan um alla þræði þess óskaplega máls.

 

http://visir.is/article/20081229/FRETTIR01/721110602

 

Frábærar tvær færslur á bloggi Sigurjóns M. Egilssonar reyna að ná utan um "Skagafjarðarflækjuna":

http://emmogess.wordpress.com/2008/12/30/skagafjar%c3%b0arfl%c3%a6kjan-s...

http://emmogess.wordpress.com/2008/12/29/fjarfestingarfelog-kaupfelagsst...

 

Fréttabútur úr Markaði gamlársdags (tengill þegar blaðið kemur á vefinn):

Allt árið var þess beðið að skilanefnd Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga lyki störfum og þeir sem þar áttu rétt fengju hluti í fjárfestingafélaginu Gift.

Um fimmtíu þúsund manns og fjölmörg fyrirtæki áttu von á hlut.

Ekki varð af því. Eignir félagsins hurfu með lækkandi hlutabréfaverði og hruni bankanna og eru skuldir félagsins talsvert umfram eignir.

Samband Íslenskra samvinnufélaga hefur óskað eftir rannsókn á málefnum félagsins. Sama hefur fulltrúaráð Eignarhaldsfélagsins gert.

Upplýst var í tengslum við aðalfund SÍS að Þórólfur Gíslason, fyrrverandi stjórnarformaður Giftar, skuldbatt félagið gagnvart Kaupþingi, svo bankinn hafði mikið um eignir félagsins að segja.

Mikið var fjallað um málefni Giftar á árinu og upplýstist meðal annars að Finnur Ingólfsson, athafnamaður og stjórnarformaður Samvinnusjóðsins - sjóðs hinna dauðu - átti enn umtalsverða hluti í Icelandair, enda þótt margir héldu hið gagnstæða.

Úr frétt morgunblaðsins 21. desember (http://mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?grein_id=1261298):

Á stjórnarfundi í Gift hinn 7. nóvember [2007] var eignarhluti félagsins í Exista gerður að umtalsefni. Töldu sumir stjórnarmenn að óvarlegt væri að meira en helmingur eigna Giftar væri í Exista og hlutdeildarfélögum og var lögð fram tillaga um að eignarhlutur Giftar í þessum félögum  yrði minnkaður. Samkvæmt fundargerðum, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, greindi stjórnarformaðurinn, Þórólfur Gíslason, þá frá "óformlegu samkomulagi" við Exista um að hlutur Giftar yrði ekki seldur fyrr en á árinu 2008.

Hendur Hesteyrar voru hins vegar ekki bundnar á sama hátt, en eins og áður segir á dótturfélag Kaupfélags Skagfirðinga, sem Þórólfur Gíslason stýrir, þriðjungshlut í Hesteyri. Hinn 22. desember 2006 barst tilkynning til Kauphallarinnar um að Hesteyri hefði selt 1,91% í Exista og var í fjölmiðlum talað um að sölugengið hefði verið 23. Fékk Hesteyri því 4,9 milljarða króna fyrir hlutinn. Eftir söluna átti Hesteyri 3,82% í Exista og voru viðskipti félagsins með hluti í Exista því ekki lengur tilkynningarskyld.

...

Samkvæmt gögnum sem Morgunblaðið hefur undir höndum var hlutur Giftar eki einungis bundinn fram á árið 2008 samkvæmt samkomulagi stjórnarformannsins við Exista, heldur var Hesteyri með sölurétt á sínum hlut til Exista. Hagsmunir Hesteyrar og eigenda þess voru því mun betur tryggðir en hagsmunir Giftar.

Hlutur Giftar í Exista var aldrei seldur og er nú nær verðlaus, en gengi bréfa Exista hleypur nú á nokkrum aurum, en fór í júlí 2007 yfir 40. Hefði 5,7% hlutur Giftar verið seldur á því gengi hefðu 24,5 milljarðar fengist fyrir hlutinn. Á gengi síðasta föstudags, fimm aurum á hlut, fengjust hins vegar aðeins um 30 milljónir króna fyrir hlutinn.

Enn vantar mikið upp á að hér sé um fulla mynd af meðhöndlun Giftar að ræða, sjá m.a.:

http://www.dv.is/brennidepill/2008/12/1/flottinn-ur-fjarvana-gift/

http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item195224/

http://www.mannlif.is/ordromur/nr/966

http://www.visir.is/article/20080514/VIDSKIPTI06/114308483

http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/prenta/store64/item170983/

http://www.bensi.is/?m=news&f=viewItem&id=87

http://www.mogginnminn.is/mm/greinilegur/frett/1379327/

http://new.vb.is/frett/9/36757/svandis-kemur-til-skjalanna

http://gunnaraxel.blog.is/blog/gunnaraxel/day/2008/11/30/