Af fólkinu fyrir fólkið

Nauðsyn þess að Íslendingar standi saman um að fá að skrifa sína eigin
stjórnarskrá er augljós.
Við urðum fyrir miklu áfalli, stjórnvöld brugðust
okkur á meðan óvandaðir einstaklingar rændu okkur. Eftir svona hrun verður að
byggja frá grunni, það þýðir ekkert að halla sér upp að eina útveggnum sem
eftir stendur, kveikja eld og reyna að hafa það kósý. Það þarf að byggja frá
grunni. Stjórnarskráin inniheldur grunnstoðir samfélagsins, ver réttindi okkar
og grunngildi. Er ráðningasamningur við stjórnvöld, setur þeim leikreglurnar
segir þeim hvernig þeim ber að starfa og hvaða gildi þeir skulu hafa að
leiðarljósi. Einhverskonar samfélagssáttmáli milli stjórnvalda og almennings.
Með því að setja stjórnlagaþing og semja nýja stjórnarskrá verðum við að taka
afstöðu til hvernig við viljum hafa okkar samfélag. Við verðum að taka afstöðu
til hvaða gildi skulu vera í hávegum höfð, hvernig viljum við hafa okkar
stjórnarskipan og hvernig viljum við dreifa valdinu til þeirra sem sækja umboð
sitt til okkar. Sú umræða sem skapast ef rétt er að staðið er nauðsynleg fyrir
okkur til að sættast við, sjálf okkur og afkomendur okkar. Því við skulum ekki
gleyma okkar ábyrgð í þessu öllu saman, við hættum að fylgjast með. Við trúðum
og treystum flokknum okkar eða einstaklingum innan hans og gleymdum að það er
okkar að veita þeim aðhald. Stjórnarskrá er, eins og fyrr segir,
ráðningasamningur við ráðamenn og er það því alveg einstaklega taktlaus og
hrokafullur málflutningur að halda því fram að alþingi eigi að hafa nokkur
afskipti af nýrri stjórnarskrá, það segir sig sjálft að ef ráðamenn eru í vinnu
hjá kjósendum sínum þá eiga kjósendurnir að semja ráðningasamninginn.

Þetta
hálfkák leiðir aldrei til sátta því það liggur í augum úti að þarna
munu flokkarnir velja og hafna eftir hentisemi og hagsmunum. Flokkarnir
eiga ekki að koma nálægt þessu, þegar öllu er  á botninn hvolft eru 
flokkarnir pólitísk félagasamtök, félagasamtök sem hafa ekkert umboð
til að vera að vasast í þessu og allt of mikið vald nú þegar sem yrði
innsiglað um ókomna tíð ef þessir vitleysingjar fá að komast með
skítuga puttanna í þetta mál. 

Borgarahreyfingin
er að vinna að Stjórnlagaþingi af fólkinu fyrir fólkið sem flokkarnir
fá ekki að koma nálægt. Borgarahreyfingin mun reyna að fjármagna
Stjórnlagaþing hvers verkefni verður að semja nýja stjórnarskrá fram
hjá alþingi. Við sættum okkur ekki við að stjórnmálastéttinn og flokkalufsurnar steli þessu af okkur.