Frjálsa hreyfingin
Frjálsa hreyfingin á upptök sín í harðri andstöðu við gamaldags flokkakerfi. Þegar nóg var komið af þeirri sóun og forréttindum sem alltaf hafa fylgt elítu flokkakerfis hægri- og vinstriflokka var sú leið valin að setja á stofn nýja pólitíska hreyfingu sem ekki tengist hefðbundnum stjórnamálaflokkum og sem reynir að stuðla að raunverulegri pólitískri byltingu. Byltingu í upprunalegri merkingu þess orðs, þ.e. mikilli umbreytingu. Raunar er aðeins með raunverulegri byltingu hægt að steypa af stóli þessu kerfi sem leiðir land okkar til hnignunar. Einungis með raunverulegri ‘pólitískri andstöðu’, án nokkurra tilslakana, getur maður vonað og verður að reyna að losna við gamla flokkakerfið.
Stjórnmálaflokkarnir hafa umbreytt sanngjörnum og lýðræðislegum stjórnarskrárramma í fámennisveldi sem stýrir öllu valdi og heldur fólki frá raunverulegri og virkri þátttöku og orsakar meiri sóun og forréttindi en nokkru sinni fyrr. Þörfin fyrir nýja pólitíska hreyfingu er því til staðar, þar sem almenningur verður aftur fullvalda þátttakandi og ríkið verður raunverulegt lýðræðislegt kerfi, ekki fámennisveldi. Lykilatriði hér er að ómögulegt er að mynda bandalag með þeim flokkum sem sköpuðu þetta kerfi og taka þátt í því: óbilgirni er nauðsynleg. Markmiðið er að útrýma gamla flokkakerfinu og hroka þeirra á lýðræðislegan hátt í kosningum. Því er nauðsynlegt að sýna slíku fólki óbilgirni, hvort sem um er að ræða miðjumenn, vinstrimenn eða hægrimenn, því annars yrði útkoman einungis til að staðfesta og styrkja stjórnmálastarfsemi eins og hún er stunduð í dag og sem við höfnum og viljum sigrast á. Við viljum nýja pólitík, þar sem borgararnir veita og svipta valdi með því að kjósa. Þingsæti er ekki til eilífðar!
Raunveruleg áskorun í stjórnmálum í dag er samhengi og hin nýja pólitíska valdastétt. Sú sem við viljum sjá við stjórnvölinn verður að koma frá grasrótinni og byggja á verðleikum. Pólitísk yfirlýsing hverrar stjórnmálarhreyfingar verður að vera fastur útgangspunktur fyrir aðgerðir þeirra í stjórn, frekar en spéspegill sem snúið er út úr daginn eftir kosningar vegna innri hagsmuna í flokknum og hagsmuna valdamikilla þrýstihópa, eins og á við í dag. Kerfið sem við trúum á verður að leyfa fólki að verða aftur fullvalda í stað þess að vera þrælar stjórnmálamanna sem náðu völdum með fölskum loforðum, stólaskiptum, brögðum og hentistefnu. Stjórnmál eru fag og meta verður lokaútkomuna í gegnum beinan stuðning borgaranna. Hinir getulausu, illgjörnu og þjófóttu verða að fara heim. Í augum frjálsu hreyfingarinnar er staða á þingi ekki áfangastaður heldur brottfararstaður í átt að nýju tímabili endurnýjunar lands okkar. Við munum ná í stýrishús stofnananna, þökk sé styrku samband við venjulegt fólk, byggja upp vöxt til framfara sem byggður er á algjörri virðingu fyrir þeim gildum sem við boðum í dag auk stöðugrar baráttu gegn sóun og forréttindum á öllum stigum, með þá sannfæringu að vopni að sýna þurfi að ekki séu allir eins sem leggja fyrir sig stjórnmál og að þrátt fyrir að fólk sé vonsvikið, þá sé til ný pólitísk valdastétt sem sæki eftir gildum af endurnýjuðum krafti. Það er hægt að breyta, það verður að breyta! Við viljum verða hin nýja stjórnmálahreyfing sem Ítalir vilja, þótt þeir telji ómögulegt að slík hreyfing sé til.
- Login or register to post comments
- Feed: Herbert Sveinbjörnsson
- Original article