Eignarhaldsfélagið Samvinnutryggingar

Þessi færsla fjallar um form félagsins, eignir þess og eignarhald. Umfjöllun um misbeitingu félagsins og tengsl þess við hin ýmsu viðskipti í gegnum tíðina er að finna í öðrum þræði.

 

Samvinnutryggingar, upphaflega tryggingafélagið, var svokallað gagnkvæmt félag, þ.e. eigendur töldust þeir sem voru í viðskiptum við félagið á hverjum tíma. Með stjórn Eignarhaldsfélags Samvinnutrygginga eftir að starfsemi félagsins hafði verið flutt inn í VÍS, fer svokallað fulltrúaráð sem skipað er 24 framsóknarmönnum (finna hvernig skipað, skilst að það hafi endurnýjað sig innan frá, þ.e. fulltrúar valið nýja fulltrúa).

 

Í júní 2007 var tekin ákvörðun um að slíta Eignarhaldsfélagi Samvinnutrygginga og flytja eignir félagsins í nýtt hlutafélag, Gift hf. Eigendur áttu að verða annars vegar tryggingartakar í Samvinnutryggingum (og Brunabótafélaginu?) sem höfðu verið í viðskiptum við Samvinnutryggingar síðasta árið fyrir sameiningu (?1987+1988?) voru enn viðskiptavinir VÍS á tilteknum degi á árinu 2006(2007?) og hins vegar sjálfseignarstofnun að nafni Samvinnusjóðurinn, sem eignast átti hlut þeirra sem hættir voru viðskiptum eða fallið höfðu frá (eignarréttur átti ekki að erfast til maka eða annarra erfingja við andlát tryggingartaka). 

 

Eignir:

Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga átti 25,8% hlutafjár í VÍS við sölu VÍS til Exista á árinu 2006. Eftir sameiningu VÍS og Exista átti eignarhaldsfélagið 5,7% í sameinuðu félagi (Exista)

Félagið Langflug var stofnað utan um eignarhlut í Icelandair sem félagið keypti í nóvember 2007(?2006?).

 

Óunnið vegna þessarar færslu

http://www.str.is/

 

 

Eignir fyrr og nú

Gift fjárfestingafélag hf.

Langflug ehf.

VÍS, Vátryggingafélag Íslands

Eignarhaldsfélagið Andvaka

Kaupþing banki hf.