Verðsvindl veitingastaða
tidarandinn - 8. ágúst 2009 - 18:48
Að gefnu tilefni skal fólki bent á að víða á veitingastöðum er misræmi milli verðs á matseðli og á kassakvittun. Á Basil & Lime á Klapparstígnum kostar t.d. bolli af cappuccino kr. 390 á matseðli en kr. 400 við kassann. Fyrir þremur vikum var gerð athugasemd á Basil & Lime við að rukkað var meira fyrir mat en verð á matseðli sagði til um en sú kvörtun virðist ekki hafa dugað til að verð rétta á matseðlinum væri leiðrétt. Vitað er til þess að á fleiri veitingahúsum bæjarins hafi fólk lent í veseni vegna þessa sama vandamáls.
- Login or register to post comments
- Feed: Guðbjörg Hildur Kolbeins
- Original article