Verkefnalisti ríkisstjórnarinnar
Ríkisstjórnin sendi frá sér fréttatilkynningu um að einungis 6 málum væri ólokið á 100 daga lista ríkisstjórnarinnar. Það er ekki rétt eins og kemur fram í óháðu mati.
Það er þó eitt sem ég staldra við í tilkynningu ríkisstjórnarinnar sem enginn fjölmiðill hefur fjallað um.
Á verkefnalistanum er þrítugasta atriðið:
Lokið við efnahagsreikninga nýju bankanna og þeir endurfjármagnaðir.
Ríkisstjónin telur þessi máli lokið, en segir svo í lok tilkynningar
sinnar þegar sagt er frá einu máli sem hún viðurkennir að er ólokið:
Stöður bankastjóra ríkisbankanna auglýstar lausar til
umsóknar (aðeins verður um eina stöðu að ræða, ef að líkum lætur og hún
auglýst um leið og endurfjármögnun Landsbanka er í höfn).[feitletrun mín]
Í tilkynningu ríkistjórnarinnar segir að sex atriðum sé ólokið og þau talin upp. Mál númer 30 er ekki eitt þeirra.
Það lítur út fyrir að ríkistjórnin sé í besta falli að senda frá sér villandi upplýsingar, í versta falli að ljúga eina ferðina enn.
En getur það verið? Fjölmiðlar myndu alltaf kanna sannleiksgildi fréttatilkynninga stjórnarinnar.
Er það ekki?
- Login or register to post comments
- Feed: Friðjón R. Friðjónsson (blog.is)
- Original article