Viðskipti peningamarkaðssjóða
Þeir urðu frægir að endemum peningamarkaðssjóðir viðskiptabankana á síðustu vikunum fyrir, og fyrstu vikunum eftir fall.
Það var að minnsta kosti tveimur vikum fyrir þjóðnýtingu Glitnis sem móðir mín hringdi í mig og hvatti mig til þess að taka peningana mína út af peningamarkaðsreikningum því þeir væru að fara að falla. Af hverju? Af því Eimskip og fleiri slík félög væru að fara. Ég átti enga peninga inni á peningamarkaðsreikningum, þannig að ég þurfti ekkert að bregðast við, en sjóðirnir fóru aldeilis flatt, þó ekki virðist Eimskip hafa verið ástæðan.
Fréttir dagsins eru um rannsókn Fjármálaeftirlitsins á viðskiptum peningamarkaðssjóðanna.
Rannsókn Fjármálaeftirlitsins í kjölfar falls bankanna beinist meðal annars að því að kanna viðskipti með verðbréf og markaðssetningu og fjárfestingu peningamarkaðssjóða samkvæmt upplýsingum frá FME, að því er fram kemur á mbl.is.
... Fjármálaeftirlitið mun vinna frekar úr upplýsingunum og meta í kjölfarið hvort tilefni sé til nánari rannsókna eða beitingu úrræða,“ segir í tölvubréfi frá FME, að því er mbl.is greinir frá.
(finna frumheimild sem AMX vísar ekki til, mbl.is 3.01.09)
Óunnið vegna þessarar fréttaskýringar
Finna fréttirnar frá haustinu til þess að fylla þessa fréttaskýringu