Leynifélagið Fjárfar ehf.
(skrá formlegar upplýsingar um eigendur og eignir á "tengslanets" síðu félagsins).
Fjárfar ehf. var stofnað til þess að kaupa verslunarkeðjuna 10-11.
Lepparnir
Skráðir stofnendur félagsins voru Sigfús Sigfússon í Heklu og Sævar Jónsson í Leonard, sem töldu sig báða hafa verið blekkta. Sigfús sagði við yfirheyrslu hjá lögreglu að hann hafi komið að stofnun þessa félags af vinargreiða við Tryggva Jónsson (finna tengil í yfirheyrsluna á baugsmalid.is). Báðir aðilar neita því að hafa unnið fyrir félagið.
Seljendur 10-11 (Eiríkur og Helga Gísladóttir) voru einnig skráðir forsvarsmenn Fjárfars ehf - að sögn án þeirra vitneskju.
Haft hefur verið eftir Aðalsteini Hákonarsyni að Tryggvi Jónsson hafi beðið hann um endurskoðun á félaginu, og að Tryggvi hafi einnig greint frá því að þeir eigendur og forsvarsmenn sem skráðir hafi verið fyrir félaginu hafi verið leppar fyrir Jón Ásgeir. Vegna þessa var Aðalsteinn tengdur Baugsmálinu (ákæra? réttarstaða sakbornings?).
Helgi Jóhannesson hrl. var stjórnarmaður og framkvæmdastjóri félagsins, að hans sögn var það Kristín Jóhannesdóttir sem gekk frá ráðningu hans. Þegar Helgi Jóhannesson sagði sig úr stjórn félagsins um mitt ár 2002, tók Jóhannes Jónsson við sæti hans.
Í myndbandi Jóns Geralds er einnig sagt að fölsuð tilkynning hafi verið send til Verðbréfaþings Íslands þess efnis að eiginkona fyrrum eiganda, Helga Gísladóttir, væri eigandi 90% hlutafjár í Fjárfari ehf. - staðreyna.
Ýmislegt bendir til þess að þessir einstaklingar hafi, meðvitað eða án sinnar vitundar verið leppar fyrir Jón Ásgeir. Jón Gerald segir að í málsgögnum Baugsmálsins sé tölvupóstur frá Tryggva til Jóns Ásgeirs þar sem Tryggvi sé að afla sér upplýsinga um Fjárfar hjá Jóni Ásgeiri (staðreyna). Hjá JGS kemur einnig fram að fyrir dómi hafi komið í ljós að Ingibjörg Pálmadóttir hafi verið raunverulegur eigandi hluta þess hlutafjár (í Baugi?) sem Fjárfar ehf var skráð fyrir (staðreyna) og að samningur hafi verið við stjórnarformann Fjárfars um að aðhafast ekkert um rekstur Fjárfars nema að fenginni heimild hjá Gaumi, eignarhaldsfélagi Baugsfjölskyldunnar.
Kaupin
Sagt er að til þess hafi félagið fengið hundruðir milljóna króna að láni frá Baugi, sem þá var almenningshlutafélag, (án vitundar stjórnar?). Fjárfar seldi síðan Baugi 10-11 búðirnar (reksturinn? ekki fasteignirnar?).
Sagt er að með þessum millileik hafi Jón Ásgeir hagnast um hundruðir milljóna króna á kostnað almenningshlutafélagsins Baugs.
Í myndbandi sem Jón Gerald hefur birt (Leppar og leynifélög II, finna slóð á you tube), segir að Fjárfar ehf hafi einnig tekið þátt í verulegum viðskiptum með hlutabréf að verðmæti hundruð milljóna króna í Straumi hf. og Tryggingamiðstöðinni.
Afdrif Fjárfars
(var félagið ekki sameinað Gaumi, hvernig var það?
Óunnið varðandi þessa fréttaskýringu
Staðreyna upplýsingarnar sem hér koma fram. Þær eru að miklu leyti úr myndbandi Jóns Geralds Sullenberger og hann einn og sér dugir ekki sem heimild fyrir fréttinni.
http://eyjan.is/blog/2008/12/30/leppar-og-leynifelog-ii/
Finna umfjöllun Morgunblaðsins um þessi kaup sem hluta af seríu Mbl. um stjarnfræðilegan hagnað einstaklilnga á kostnað almenningshlutafélaga eða annarra sambærilegra aðila (Serían fjallaði um kaup Björgólfs á Straumi?, Finns á Icelandair o.fl.).