Endurskipulagning Milestone

Milestone er eitt af þessum félögum sem hefur farið illa út úr kreppunni, fjárfestingar félagsins hafa hrunið og eignir þeirra rýrnað.

 

Eins og frægt er orðið stendur fyrir dyrum endurskipulagning á starfsemi félagsins með aðkomu stærsta lánardrottinsins, Glitnis banka. Stendur þar til að gefa þeim Wernersbræðrum möguleika á að eignast félagið aftur að hluta til - gangi endurfjármögnunin upp og lifi félagið af fyrirsjáanlegar lægðir í efnahagslífinu. Er það mat manna að með því sé verið að hygla þeim umfram það sem eðlilegt þykir.

Félagið skuldar 115 milljarða en eignir þess eru metnar á 60 milljarða. Við endurskipulagninguna eru því 55 milljarðar afskrifaðir. Miðað við þetta er eign bræðranna orðin að engu.

Hins vegar er þeim tryggður 13% eignahlutur ef eignirnar hækka í verði umfram þessa 60 milljarða. Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta, segir þetta ekki hefðbundin vinnubrögð. Hann segir að ekkert jafnræði sé í þeim samningum sem skilanefndir bankanna séu að gera við fyrirtæki. Sömu reglur gildi ekki um alla eigendur og það sé óréttlátt. (rúv.is, 21.12.08 sjá einnig Moggann frá sama degi)

Óunnið vegna þessarar fréttaskýringar

skýra betur fléttuna sem um er að ræða, tengja við umræðu um eignfærslu á viðskiptavild.