Tilboð Breta vegna flutninga Icesave í breska lögsögu

Það var athyglisverð sprengja sem Björgólfur Thor varpaði fram í Kompásþætti í október síðastliðnum. Hann greindi frá því að Bretar hefðu boðið að Icesave yrði flutt í breska lögsögu á fimm dögum gegn því að Landsbankinn legði fram tryggingu í beinhörðum peningum (ca 200 milljónir punda?). Innleggið þyrfti að berast í síðasta lagi á hádegi mánudaginn 6. október 2008. Björgólfur hélt áfram og sagði að leitað hefði verið til Seðlabanka Íslands um lán fyrir þessari tryggingu en Seðlabankinn hefði ekki virt þá félaga viðlits og ekki svarað beiðninni fyrr en hálftíma eftir að frestur Bretana

Davíð svaraði að venju með því að slík lánveiting hefði ekki leyst allan vanda Landsbankans. En sagði jafnframt að hann kannaðist ekkert við slíkt tilboð frá Bretum.

Óunnið vegna þessarar fréttaskýringar

Finna heimildir og lagfæra orðalag ef með þarf.

Fylla betur í frásögnina og orðræðu manna síðan, hver vissi hvað hvenær og svo framvegis.

Finna handrit af samtali Darling og Árna Matt og vísun Darling í peningana.