Hjartahnoð og munnur við munn

Borgarahreyfingin er klofin, í annars vegar þá sem telja að þinghópurinn eigi að  vera á einkaflippi í eigin umboði inni á þingi (fara eingöngu eftir eigin samvisku) og svo hins vegar þá sem vilja að þinghópurinn starfi með stjórn og grasrót þannig að hreyfingin sem heild fái rödd inni á alþingi. 

Byrjum á byrjuninni.

Eftir þrautalausa fundarsetu um samþykktir sem allir höfðu allt að því áráttukennda skoðun á, eins og gjarnan vill vera þegar hópur kverúlanta koma saman, gafst ég upp á að Samstaða,bandalag grasrótarhreyfinga, myndi nokkurn tímann koma einhverju framboði í gagnið. Þá hafði ég samband við Gunnar Sigurðsson félaga minn og bað hann um að hjálpa mér að koma einhverju á koppinn. Við settumst niður og ákváðum hverja við vildum á stofnfundinn og hverjir ættu að gegna hvaða stöðu. Við handvöldum fólk alls staðar að til að fá sem flestar grasrótarhreyfingar inn í þetta. Tókum vinnu lýðveldisbyltingarinnar með húð og hári, fléttuðum hugmyndum um efnahagsúrbætur frá Þór Saari og Lilju Móses inn í þetta og úr varð lítil en öflug stefnuskrá. 

Það stóð aldrei til að þinghópurinn væri á þingi í eigin umboði. Við gerðum þetta allt saman í flýti og við þekktumst sama og ekkert, við röðuðum blint upp á listanna, höfðum ekki hugmynd um hver Birgitta Jónsdóttir var eða fyrir hvað hún stendur. Okkur fannst það ekki skipta máli því hugmyndin var að hreyfingin fengi rödd inni á þingi. Það átti ekki að skipta máli hverjir komust á þing. Það sjá allir sem á annað borð vilja sjá, að áhættan við að vinna fyrir einhverja sem fara svo bara á einkaflipp er töluverð þegar þetta er fyrirkomulagið. Þess vegna er nauðsynlegt að hafa öfluga grasrót til að veita þinghópnum aðhald. Hugmyndin var að við værum öll hæfir þingmenn, ekki bara sumir eða eins og það var orðað "maður kemur ekki í manns stað".

Það verður að reyna að koma blóðinu til að flæða, koma lífi í
líkið. Vil ég því að gefnu tilefni lýsa eindregnum stuðningi  við áform 12 menninganna um stjórnarsetu og lít reyndar svo á að ef á að takast að bjarga þessu er hjartahnoð og munnur við munn frá þessum hópi eina von sjúklingsins sem gengur undir nafninu Borgarahreyfingin.