Ófyrirleitnar lánveitingar til eigenda Kaupþings

Sjá einnig færsluna 100 milljarða millifærslur Kaupþings.

 

Fyrst kom teaser á mbl.is:

Kaupþing lánaði stærstu eigendum sínum og tengdum aðilum hundruð milljarða króna, samkvæmt lánabók Kaupþings, en Morgunblaðið hefur hluta hennar undir höndum.

Um er að ræða stöðu útlána í lok júní 2008, þremur mánuðum fyrir hrun bankans. Stór hluti lánanna var veittur til eignarhaldsfélaga sem skráð eru í Hollandi og á Tortola-eyju, sem er ein af Bresku Jómfrúreyjunum.

Lánveitingar til Roberts Tchenguiz voru mun hærri en áður hefur komið fram. Af þrettán félögum Tchenguiz sem fengu lán eru sjö skráð á Tortola-eyju. Eitt þeirra er Oscatello Investments Ltd. Skilanefnd Kaupþings hefur sem kunnugt er höfðað mál gegn Oscatello Investments Ltd. vegna veðtryggðrar lánalínu eða „yfirdráttar í erlendum gjaldeyri á viðskiptareikningi“ eins og það er orðað í stefnu, upp á 107 milljarða króna.

Einnig er um að ræða lánveitingar beint til eigendanna eða venslafólks þeirra. Sem dæmi má nefna lán á fjórða milljarð króna til Ágústs Guðmundssonar í Bakkavör og eiginkonu hans og smærri lánveitingar, sem hlaupa á hundruðum milljóna króna, til íslenskra eignarhaldsfélaga.

Nánar verður fjallað um málið í Morgunblaðinu á morgun.

Svo komu stóru fréttirnar. Forsíðufrétt Morgunblaðsins laugardaginn 7. mars var eftirfarandi:

500 milljarðar til eigenda

* Kaupþing lánaði stærstu eigendum sínum og tengdum aðilum 478 milljarða samkvæmt lánabók
* Lánin voru ýmist veitt til íslenskra félaga í þeirra eigu eða félaga í Hollandi og á Tortola-eyju
* Skuldir Roberts Tchenguiz námu 230 milljörðum í júní, 278 milljörðum á gengi dagsins í dag

KAUPÞING lánaði stærstu eigendum sínum og tengdum aðilum samtals 478 milljarða króna, samkvæmt lánabók Kaupþings, en Morgunblaðið hefur hluta hennar undir höndum. Um er að ræða lán til Ágústs og Lýðs Guðmundssona, Ólafs Ólafssonar, Roberts Tchenguiz og félaga í þeirra eigu.
Lánin voru ýmist veitt þeim sjálfum, íslenskum fyrirtækjum sem þeir áttu eða eignarhaldsfélögum í Hollandi og á Tortola-eyju. Um er að ræða stöðu útlána 30. júní 2008, þremur mánuðum fyrir hrun bankans. Lánin eru gengisbundin og flest veitt í gegnum Lúxemborg og London. Séu lánin umreiknuð miðað við stöðu krónunnar í dag eru þetta lánveitingar upp á rúmlega 573 milljarða króna. Upphæð lánanna fékkst staðfest hjá Kaupþingi í gær.
Lánveitingar til Ágústs og Lýðs í gegnum Exista-samstæðuna nema 169,1 milljarði króna. Þar af er 108,4 milljarða lán til Exista hf. og 30,8 milljarða lán til eignarhaldsfélags þeirra bræðra, Bakkabraedur Holding BV. Exista var stærsti hluthafi Kaupþings þegar bankinn féll.
Útistandandi lán til Roberts Tchenguiz, sem situr í stjórn Exista, nemur samtals 230,2 milljörðum króna, samkvæmt lánabókinni, en 278 milljörðum króna sé það umreiknað miðað við gengi. Af lánveitingum til þrettán félaga í eigu Tchenguiz eru sjö þeirra skráð á Tortola-eyju. Lánveitingar til Ólafs Ólafssonar og tengdra félaga nema 78,9 milljörðum króna.

* 230 milljarða króna lán til Roberts Tchenguiz
* 169 milljarða króna lán til Bakkabræðra og tengdra félaga
* 79 milljarða króna lán til Ólafs Ólafssonar og tengdra félaga

* Kröfur vegna lánanna eru ýmist hjá skilanefnd Kaupþings eða hjá Nýja Kaupþingi.
* Algjörlega óvíst er hversu mikið útlánatap verður vegna lánveitinganna.
* Skilanefnd Kaupþings hefur þegar höfðað mál gegn félagi í eigu Tchenguiz vegna vanskila.

 Á innsíðum blaðsins var frásögninni haldið áfram:

 

Hundraða milljarða lán til eigenda

Í LOK júní 2008 voru útistandandi lán Kaupþings til eigenda og tengdra aðila rúmlega 478 milljarðar króna, samkvæmt lánabók Kaupþings, en Morgunblaðið hefur hluta hennar undir höndum. Lánin voru ýmist veitt til eigendanna sjálfra, íslenskra fyrirtækja þeirra eða eignarhaldsfélaga í Hollandi og á Tortola-eyju.
Til þess að setja upphæðina í samhengi var upprunaleg kostnaðaráætlun vegna byggingar Kárahnjúkavirkjunar rúmlega 100 milljarðar. Þetta er því rúmlega fjórföld sú upphæð. Um er að ræða gengisbundin lán sem eru sýnd í lánabók í milljónum króna og miðast við 30. júní 2008, þremur mánuðum fyrir hrun.

170 milljarðar til Bakkabræðra

Lán til Ágústs og Lýðs Guðmundssona og tengdra félaga námu 169,1 milljarði króna, en Exista var stærsti hluthafi Kaupþings þegar bankinn féll. Í þeirri tölu er lán til Exista hf. upp á 108,4 milljarða, lán til eignarhaldsfélags þeirra bræðra, Bakkabraedur Holding BV upp á 30,8 milljarða, lán til Ágústs og eiginkonu hans, Þuríðar Reynisdóttur, upp á 2,4 milljarða og lán til Ágústs upp á 1,4 milljarða.
Lán til Roberts Tchenguiz námu 230,2 milljörðum króna. Í þeirri tölu er lán til eignarhaldsfélagsins Oscatello Investments Ltd., en skilanefnd Kaupþings hefur nú höfðað mál til að innheimta lánið. Af þrettán félögum í eigu Tchenguiz sem fengu lán eru sjö skráð á Tortola-eyju. Tchenguiz skrifaði grein í Morgunblaðið sl. miðvikudag þar sem hann segir að það sé ekki rétt að hann hafi fengið 280 milljarða króna lán frá Kaupþingi síðustu 12 mánuðina sem bankinn starfaði. Séu lánveitingar til Tchenguiz, eins og staða þeirra var í lánabókinni í júní 2008, umreiknaðar á núverandi gengi nema þær 278 milljörðum króna.

Risavaxnar fyrirgreiðslur

Samkvæmt lánabókinni námu lán til Ólafs Ólafssonar og tengdra félaga samtals 78,9 milljörðum króna. Þar af er 4,9 milljarða lán til Ólafs sjálfs.
Í dag eru kröfur vegna lánanna ýmist hjá skilanefnd Kaupþings eða Nýja Kaupþingi. Óvíst er hversu mikið útlánatap verður vegna lánveitinganna. Þessar lánveitingar sýna, svo ekki verður um villst, að stærstu eigendur Kaupþings og tengdir aðilar fengu risavaxnar fyrirgreiðslur hjá bankanum. Öll meiriháttar lán fóru fyrir stjórn bankans. Þess ber að geta að í 76.gr. hlutafélagalaga segir að stjórn hlutafélags megi ekki gera neinar ráðstafanir sem bersýnilega eru til þess fallnar að afla ákveðnum hluthöfum eða öðrum ótilhlýðilegra hagsmuna á kostnað annarra hluthafa.

Með fréttinni fylgdu eftirfarandi töflur með upplýsingum um samsetningu lánanna:

 

Úr lánabók Kaupþings 30. júní 2008
Nafn 1) 2) 3) 4) 5) 6) Heild
Exista hf. 16.058 74.606 0 632 7.140 9.984 108.420
Bakkabræður Holding BV (H) 12.187 18.629 0 0 0 0 30.816
Exista BV (H) 0 3.609 0 44 0 0 3.654
Ortland Equities Ltd. 0 2.410 0 29 0 0 2.439
Jukebox LP 0 2.312 0 13 0 0 2.325
Barello Global SA 0 2.265 0 24 0 0 2.289
New Ortland II Eq. Ltd (T) 0 1.695 0 41 0 0 1.736
A. Guðmundss. & Reynisd. 0 1.621 0 778 0 0 2.399
Ágúst Guðmundsson 0 1.409 0 13 0 0 1.422
Bakkabræður Strategic Investm. 0 407 0 0 0 0 407
My Mariu Ltd. 0 315 0 0 0 0 315
Dontesal 0 248 0 0 0 0 248
Ufsastaðir ehf. 0 109 0 0 0 0 109
Fiskifréttir ehf. 0 95 0 0 0 0 95
Lýður Guðmundsson 0 40 0 0 0 0 40
Jukebox Group Corp. 0 7 0 20 0 0 27
Framtíðarsýn hf. 4 0 0 13 0 0 17
Vátryggingafélag Íslands hf. 3 0 0 302 0 0 305
Lýsing hf. 0 0 0 0 0 0 0
Guro Leisure Ltd. 12.024 0 0 0 0 0 12.024
Exista Invest ehf. 0 0 0 0 27 0 27
Exista invest ehf. 0 0 0 0 46 0 46
Alls Bakkabræður 40.277
109.777 0 1.909 7.213 9.984 169.160
Kjalar hf. 0 51.959 0 312 8.368 0 60.539
Iceland Seafood Int. ehf. 6.581 2.405 10 6 0 0 9.001
Ólafur Ólafsson 0 4.976 0 0 0 0 4.976
Samskip Holding B.V. (H) 0 2.541 0 163 0 0 2.704
Samskip hf. 657 0 21 121 0 0 801
Sable Air ApS 0 540 0 0 0 0 540
Marine Choice Ltd. 0 271 0 0 0 0 271
Sigurðsson & Ólafsson 0 39 0 0 0 0 39
Fordace Ltd. (Tortola) 0 22 0 0 0 0 22
Hanna Ólafsdóttir 0 12 0 0 0 0 12
Jónar Transport hf. 0 0 0 1 0 0 1
Alls Ólafur Ólafsson 7.238 62.765 31 503 8.368 0 78.907
Oscatello Inv. Ltd. (Tortola) 110.865 28.838 0 281 0 0 139.984
Bay Restaurant Hold. Ltd. 0 20.357 133 1.872 0 0 22.363
Thorson Investment Ltd. (T) 0 12.318 0 0 0 0 12.318
Violet Capital Group Ltd. (T) 0 7.320 0 0 0 0 7.320
Town and City Pub co. Ltd. (T) 0 3.678 0 3.455 0 0 7.133
Pub Bidco Ltd. (Tortola) 0 2.987 109 0 0 0 3.096
Little Voice Ltd. 0 1.744 0 0 0 0 1.744
Pub Pikco Holding Ltd. 0 1.679 0 0 0 0 1.679
Robert Tchenguiz 0 27 0 0 0 0 27
Violet Capital Group Ltd. (T) 0 0 0 0 6.928 0 6.928
Razino Properties Ltd. (T) 0 0 0 0 15.666 0 15.666
Razino Ltd. 0 0 0 0 265 0 265
Heatherville Ltd. 0 0 0 0 11.756 0 11.756
Alls Robert Tchenguiz 110.865 78.949 242 5.609 34.615 0 230.279

 

Skýringar

Þrjár töflur voru birtar í Morgunblaðinu, þær hafa verið sameinaðar hér í eina, með millisamtölum um hvern þriggja hópanna sem um er fjallað. Töflurnar eru birtar nákvæmlega eins og þær komu fram í Morgunblaðinu, mögulega með villum, sbr. tvær línur fyrir Exista Invest ehf. og Violet Capital Group Ltd. hér að ofan.

1) Skammtímalán og víxlar

2) Langtímalán

3) Veittar ábyrgðir

4) Ónotaðar lánsheimildir

5) Afleiður

6) Hluta- og skuldabréfaeign

(H) Holland

(T) Tortola

 

 

 

 

Nú hafa Morgunblaðsmenn tekið í gegn lánveitingar Glitnismanna og Kaupþingsmanna, þá bíðum við bara eftir niðurstöðum rannsókna á Landsbankamönnum (sem voru, þar til fyrir skömmu síðan, eigendur Morgunblaðsins).