Rauðsól - Ný sýn - Sýn
Félagið Rauðsól var stofnað á haustmánuðum 2008 til þess að kaupa fjölmiðlahluta 365 hf.
Nafni þess var síðar breytt í Ný sýn og enn síðar í Sýn.
Ari Edwals, forstjóri 365 upplýsir í viðtali við Ríkisútvarpið að fáir hluthafar hafi sýnt því áhuga að kaupa hlut í félaginu Sýn en tók fyrir skömmu yfir allra fjölmiðla 365. Jón Ásgeir Jóhannesson eigi því um 70% hlut í miðlunum.
Í frétt Ríkisútvarpsins segir að allir fjölmiðlar 365 hafi verið seldir út úr félaginu til hlutafélags sem síðar fékk heitið Sýn en það að fullu í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Aðrir hluthafar í 365 fengju í kjölfarið tækifæri til að kaupa hlut í Sýn. Frestur til þess rann út 15 desember. Ríkisútvarpið hefur það eftir Ara Edwald að um 20 hluthafar hafi nýtt þennan kauprétt. Það sé því óverulegur hluti hluthafanna sem kjósi að leggja fé áfram í félagið. Það þýðir að Jón Ásgeir á í dag meirihlutann í Sýn.
Unnið er að því að fá hluthafa að félaginu, bæði að því hlutafé sem liggi fyrir og einnig með því að auka hlutaféð. (AMX.is, 28.12.08)
Óunnið vegna þessarar færslu
Splitta upp í fréttaskýringu og tengslanet.