Þingmenn

Fundir og ferðalög

Bekkurinn var þétt setinn í Egilsbúð í gær. Norðfirðingar létu þingmenn sína heyra það eins og þeim er lagið; samgöngumál einna fyrirferðarmest, enda óvíða verri vegi að finna en einmitt innanbæjar í Fjarðabyggð!

Norðfjarðargöng eru brýnasta stórverkefni ríkisins að mínu mati. Lífshættulegur 630 metra hár fjallvegur á slóðum helstu burðarstoða íslensks atvinnulífs er hneyksli í reynd - og því miður aðeins tímaspursmál hvenær næta stórslys verður á þeim snarbratta og ónýta vegi sem liggur beggja vegna að Oddsskarði.

Norðfjarðargöng verða að fara framar á samgönguáætlun; barátta í þá veru er framundan, jafnt innan þings sem utan. Þar er ég hvergi vígamóður.

Kvöldinu áður sat ég skemmtilegan fund með körlunum á Djúpavogi; var skammaður fyrir að boða fundinn fyrsta þriðjudag í mánuði, því þá er kvenfélagsfundur í plássinu. Umræðan eigraði milli atvinnu- og samgöngumála. Það er annars kraftur á Djúpavogi; nærri 10 prósent íbúanna undir fimm ára aldri sem er auðvitað toppeinkunn fyrir framsækið byggðarlag.

Hélt yfir öræfin í dag, áleiðis til Akureyrar - á ágætlega þíðum jepplingi. Veðrið þannig að það sveif á mig kvæði:

SÖGULAUSIR FRÉTTAMENN

...Fréttastofa Sjónvarps taldi sig geta sýnt fram á það í kvöld að sú staðhæfing mín væri röng að ég hefði ekki stutt ávæði lífeyrislaga sem kváðu á um að lífeyrissjóðir ættu jafnan að leita eftir hámarksávöxtun í fjárfestingum sínum. Ég hefði nefnilega stutt  lágabálk sem hafði að geyma ákvæði þessa efnis á sínum tíma. Aðeins ....En nú aftur að frétt Sjónvarpsins. Kannski á ekki að álasa fólki fyrir að kunna ekki skil á þessum sögulegu staðreyndum. Samt finnst mér sögulaust skilningsleysi fréttastofunnar vera mjög ámælisvert,  einsog það birtist okkur í kvöld. Vera kann að stundum komi slíkt skilningsleysi ekki að sök en þegar verið er að hafa æruna af mönnum er varla til of mikils mælst að biðja fréttamiðla að setja menn í verkin sem hafa lágmarksþekkingu á viðfangsefni sínu eða hafa faglegan metnað til að standa heiðarlega að verki....

Málsvörn Ögmundar

Undarlegt var að hlusta á Ögmund Jónasson innanríkisráðherra verja gjörðir sínar í Kastljósi með því að hann hafi sjálfur ekki fengið við neitt ráðið sem stjórnarmaður og um skeið stjórnarformaður Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, af því að með breytingu á lögum um starfsemi lífeyrissjóða hafi þeim verið „gert að braska með peninga lífeyrisgreiðenda“. Heyr á endemi.

Í 36. grein laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða segir um fjárfestingarstefnu lífeyrissjóða:

„Stjórn lífeyrissjóðs skal móta fjárfestingarstefnu og ávaxta fé sjóðsins með hliðsjón af þeim kjörum sem best eru boðin á hverjum tíma með tilliti til ávöxtunar og áhættu (leturbr. mín). Stjórn lífeyrissjóðs er heimilt að móta sérstaka fjárfestingarstefnu fyrir hverja deild í deildaskiptum sjóði …“

Hér er augljóslega gert ráð fyrir þvi að stjórnir lífeyrissjóða móti sér ábyrga fjárfestingastefnu „með tilliti til ávöxtunar og áhættu“ eins og segir í lögunum. Hér er ekki mælt fyrir um að tekin skuli áhætta með fjárfestingum sjóðanna heldur þvert á móti séu ávöxtunarmöguleikar metnir í ljósi áhættunnar.

Kreppan búin

Við getum ekki búist við því, þremur árum eftir hrun, að allt sé fallið í sömu skorður og áður. Hrunið hafði skaða í för með sér, tap sem ekki endurheimtist svo glatt, og aldrei að fullu. Þetta tap bera bæði einstaklingar og fyrirtæki, samfélagið allt.

En batinn er hafinn og það er bjartara framundan núna, þremur árum eftir þess atburði.

Klárum verkin

Það er mikið land undir fæti þingsmanns, þessa dagana. Akureyri, Húsavík, Egilsstaðir, Djúpivogur, Fjarðabyggð og Seyðisfjörður.

Kjördæmadagar eru mínar ær og kýr í pólitísku starfi. Fyrirtækja- og stofnanaheimsóknir, ásamt fundahaldi í misjafnlega stórum bæjarfélögum, sem hafa öll sína sögu að segja.

Þessar sögur eru nefnilega aðalatriði.

Til dæmis innlegg heimamanna á 60 manna þróttmiklum fundi okkar Oddnýjar G. Harðardóttur og Kristjáns L. Möllers á Húsavík í gærkvöld; en þar var rætt um samhengi ferðaþjónustu og samgangna. Og þeirri spurningu velt upp hvort landsmönnum hafi orðið ágengt í styttingu þjóðleiða frá þjóðveldisöld - þá er menn riðu um héruð, stystu leið milli landshorna.

Ég verð á Djúpavogi í kvöld, Möller á Seyðisfirði og Jónína Rós, ásamt Skúla Helga á Héraði … ef það verður flogið að sunnan.

Og nú er að klára verkin …

-SER.

ÁFANGI Á LANGRI VEGFERÐ

...Erlent fræðafólk sem sótti ráðstefnuna tók í sama streng og tjáði mér  að samtal sem þetta væri forsenda þess að efla meðferð kynferðisbrota í réttarkerfinu. Fulltrúi innanríkisráðherra og forseti Lagadeildar Háskóla Íslands staðfesta þetta samfélagssamtal  með gein sinni í dag. Fyrir ári síðan tók ég undir þær raddir sem sögðu að á skorti að „kerfin töluðu saman" í málefnum sem lúta að kynferðisbrotum. Ekki voru allir alls staðar sáttir við slíkar staðhæfingar og að ráðuneytið skyldi taka frumkvæði að þessari umræðu. Þær raddir hafa þagnað og samtalið er hafið. Það er gleðilegt því með slíku samtali eyðast fordómar og misskilningur og nýr veruleiki verður til...

DÓMUR UPP KVEÐINN?

...Þetta og sitthvað annað kom upp í hugann þegar Sjónvarpið kvað upp sinn myndræna dóm í fréttum kvöldsins þar sem sýnt var tap LSR með tilvísan í stjórnarformennsku mína á árinu 2007. Fréttaflutningur Sjónvarpsins þótti mér sannast sagna ekki upp á marga fiska og á það við um ýmsa aðra fjölmiðla sem sagt hafa frá umræddri skýrslu. Staðhæft er að LSR hafi tapað mest allra íslenskra lífeyrissjóða í hruninu. Þetta er rangt. Hlutfallslega var tap LSR svipað og meðaltap allra lífeyrissjóða eins og það er reiknað í skýrslunni, minna en þeirrasem mestu töpuðu, meira en þeirra sem minnst töpuðu. Ef notaðar eru...

Óvænt uppákoma á frumsýningu

Á dauða mínum átti ég von en ekki því að ég myndi fyrirvaralaust verða númer á frumsýningu Íslenska dansflokksins í kvöld. Hvernig átti mig að gruna það þegar ég þáði boð Sögu dóttur mínnar um að koma með henni á frumsýninguna að ég myndi enda uppi á sviði sem mótdansari í dúett á móti Hannesi Þór Egilssyni listdansara?

Já, ég veit, þetta hljómar eins og nú hafi ég snappað og ruðst upp á svið til þess að taka þátt í danssýningu . En bara róleg – þetta átti allt að vera svona Ég var bara óundirbúin, eins og hinir áhorfendurnir sem lentu uppi á sviði með mér. Nema hvað ég þurfti að halda út lengur en þeir.

Þetta gerðist svona: Í miðju dansverki ísraelska danshöfundarins Ohad Naharins brugðu dansararnir sér út í sal, og völdu hver sinn áhorfanda sem leiddur var upp á svið til þess að taka þátt í atriði, sem auðvitað var óundirbúið fyrir áhorfendur, en þræl undirbúið af hálfu dansaranna.

Syndicate content