Frjálslyndi flokkurinn
Ekki benda á mig.....
Segir Jón Ásgeir....
og stjórnendur lífeyrissjóðanna
og þingmenn í hrunstjórninni og andstöðu
og ráðherrar í sömu stjórn og andstöðu
og bankastjórar gömlu bankanna
og ASÍ
og FME
og SA
og núverandi ríkisstjórn og andstaða
og við kyngjum þessu öllu vitandi að þegar allir ofantaldir aðilar neita að taka ábyrgð og breyta einhverju þá verður það ekki gert. Ef það á breyta einhverju verðum við víst að gera það sjálf.....er það ekki?
Ögmundur á að hafa vit á að hætta þessu nuddi í RÚV
Umfjöllun um hrunaskýrslu lifeyrissjóðanna opinberar gríðarlegt tap almennings og hversu vonlaust skipulag "besta lífeyrissjóðakerfis í heimi" er. Sömuleiðis veitir umfjöllunin innsýn í sérkennilegt samkrull spilltrar stjórnmálastéttar og hagsmunasamtaka, í gramsi með lögþvingaðan sparnað launafólks.
Varnarræða Ögmundar fyrrum stjórnarformanns í lífeyrissjóði LSR minnir um margt á málflutning félaga hans Geirs Haarde, sem klifar á því að Ísland hafi orðið illa úti í alþjóðlegum fjármálastormi. Hlaupið er yfir þá staðreynd að litla Ísland var vettvangur stærstu gjaldþrota heimssögunnar og að stjórnvöld sváfu á verðinum. Skrif Ögmundar eru í raun einn ruglandi en hann þykist hafa varað við og seð að í óefni stefndi fyrir hrun, en stjórnarformennska hans í lífeyrissjóði LSR ber þess engin merki. Tapið á þeim bænum svarar til einnar Kárahnjúkavirkjunar.
Formaður Sjálfstæðisflokksins í erfiðum málum
Í þættinum Landið sem rís, var Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins að fara yfir orsakir hrunsins og hver næstu skref ættu að vera við endurreisn landsins. Bjarni fékk málefnalegar og gagnrýnar spurningar frá þáttarstjórnendum. Meðferðin á Bjarna var að þvi leytinu býsna ólík þeirri sem að formaður Vg fékk í sama þætti, en Steingrímur J. fékk að vaða á súðum um mikla björgunarleiðangra sína undir nánast lofgjörð þáttarstjórnenda.
Greinilegt var að Bjarni hefur fengið línuna úr Hádegismóum um hvað hafi orskað hrunið og hvernig eigi að vinna sig út úr erfiðri stöðu. Í stuttu máli þá var rauði þráðurinn í viðtalinu sá, að orsakanna væri ekki að leita í algerri óstjórn og einkvinavæðingu Sjálfstæðisflokksins - Skýringarnar voru einhverjar allt aðrar.
Síðasta ár
Nú er eitt ár síðan þó nokkur breyting varð á mínum högum. Yfirmönnum var sagt upp einn kaldan janúardag 2011 hjá Sjálfsbjörg landssambandi fatlaðra og samtökin felld að hluta undir ríkisrekið hjúkrunarheimil sem er sjálfseignastofnun Sjálfsbjargar lsf.
Þar átti nú að stofna þekkingarmiðstöð.
Allt gott um það að segja og tímabært að fé fari að koma frá ríkinu í þessa baráttu fatlaðra í staðinn fyrir að renna hina leiðina. Ekki heldur vanþörf á að bæta þjónustuna milliliðalaust við fatlað fólk. Ég vona bara að þessi hugmynd eigi eftir að komast í framkvæmd án þess að allt fé landssambandsins fari í það.
Þetta reyndist hin mesta blessun fyrir mig. Ég held að síðasta ár hafi verið eitt það léttasta sem ég hef lifað. Það var þó óneitanlega mjög skrýtið að vera svona frjáls með sinn tíma heilt sumar. Þessi sex ár á undan hafði ég aldrei tekið sumarfrí lengur en tvær vikur í einu. Það var samkvæmt samningi við fyrri stjórn.
Öngstræti Ögmundar
Helsti vandi Ögmundar er ekki gjammið í Þráni Bertelssyni heldur, að hann hefur gengið algerlega þvert gegn þeim öflum i Vg sem áður studdu Ögmund. Ögmundur andæfði í; Icesave, AGS og Evrópusambandsæfingum formanns Vg og uppskar innanríkisráðherrann nokkurn stuðning hjá róttækum öflum innan Vg og þeim einlæglega vilja raunverulegar breytingar í samfélaginu. Með stuðningi sínum við þingmál formanns Sjálfstæðisflokksins sem ætlað er að koma í veg fyrir að fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, svari fyrir gjörðir sínar í aðdraganda hrunsins hefur Ögmundur algerlega glatað öllu trausti.
Í viðtali á Bylgjunni í morgun var málflutningur Ögmundar ámótlegur en þar vitnaði hann til samvisku sinnar og kallaði mögulega eftir sannleiksnefnd, nú nokkrum árum eftir hrun - Ansi seint i rassinn gripinn.
Nú má spyrja Ögmund hvar samviska hans og félaga hans þeirra Jóns Bjarnasonar og Atla Gíslasonar hefur verið í málefnum þeirra sjómanna sem að þeir þóttust ætla að bæta mannréttindabrot íslenskra stjórnvalda og fluttu um það sérstakt þingmál fyrir nokkrum árum.
Geir Haarde var dæmdur í Hæstarétti
Innvígðir Sjálfstæðismenn reka þann áróður þessa dagana að Geir Haarde hafi nánast heilagur embættismaður sem hafi bjargað Íslandi, þegar hrunið skall á landið utan úr heimi!
Þetta er auðvitað eins og hver önnur vitleysa og það veit almenningur sem greiðir reikninginn af hruninu en þar af auki hafa embættisfærslur Geirs Haarde við einkavinavæðingu ÍAV verið dæmdar ólögmætar í Hæstarétti Íslands.
Það er óneitanlega grátbroslegt að sumir þeir þingmanna Vg sem hneyksluðust mjög á einkavinavæðingu Geirs í aðdraganda hrunsins og kröfðust ábyrgðar virðast nú vera búnir að kokgleypa hráan áróður Sjálfstæðisflokksins.
Fjórflokkurinn lætur ekki að sér hæða.
Í lok jólahalds
Nú, þegar ég er að klára að pakka niður jólunum og koma heimilinu í sitt hversdagslega ástand, leita ýmsar hugrenningar á mig.
Hvers vegna er ég t.d. að standa í svona stússi fyrir nokkra daga. Þó ég lengi jólin í báða enda þá eru þetta þrjár til fjórar vikur á ári.
Hvers vegna er ég að kaupa gjafir fyrir fleiri tugi þúsunda akkúrat á þessum tíma. Ég tala nú ekki um vandræðaganginn með hvað það eigi nú að vera, handa hverjum og einum svo þeir verði ánægðir með gjöfina.
Í öllu mínu jólaskrauti, sem ég hef bæði föndrað sjálf eða safnað hér og þar um heiminn, eru þrír hlutir sem mér voru gefnir og eru þeir mér afar kærir. Þeir hafa ekki kostað mikið og fer lítið fyrir þeim. Þeir voru hinsvegar gefnir í hinum sanna anda jólanna. þ.e. gamla andanum sem ríkti áður en kaupmennirnir rændu jólunum.
Steingrímur J. vill einkavæða raforkukerfið
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa gefið mjög misvísandi skilaboð um sölu Landsvirkjunar. Engu líkara hefur verið en að ráðamenn hafi gefið út hinar ýmsu meldingar til þess að kanna jarðveginn og vita hversu langt er hægt að ganga i sölu á orkuauðlindum þjóðarinnar. Með þessu ráðslagi eru þau Steingrímur J. og Jóhanna að fara eftir uppskrift og viljayfirlýsingu AGS og ríkisstjórnarinnar.
Fyrirhuguð sala á Landsvirkjun hefur fallið í mjög grýttan jarðveg og jafnvel þó svo að salan væri skilyrt við lífeyrissjóðina, en traustið á þeim er ekki mikið um þessar mundir.
Í kvöld birtist síðan Steingrímur J. á skjánum með nýja tillögu um að selja Landsnetið til lífeyrissjóðina. Salan á Landsnetinu er galnari hugmynd en sala á Landsvirkjun þar sem dreifikerfið er i eðli sínu einokunarstarfsemi og nær útilokað er að koma á samkeppni á dreifingu raforku á meðan fræðilega séð, er hægt að koma á samkeppni á framleiðslu raforku.
"Grasrót" Alþýðusambands Íslands fundar með forsetum
ASÍ hefur blásið til fundar snemma á þriðjudagsmorgni, þar sem spurt er hvort að það fylgi íslensku krónunni blessun eða bölvun.
Ræðumenn á bölvunar eða blessunarfundi ASÍ eru : Gylfi Arnbjörnsson forseti, eldheitur baráttumaður fyrir verðtryggingunni. Arnór Sighvatsson, einn æðsti ráðamaður Seðlabankans bæði fyrir og eftir hrun. Friðrik Már Baldursson forseti, sá sem skrifaði kostaða skýrslu nokkrum mánuðum fyrir hrun, um mikinn styrk íslenska fjármálakerfisins. Ragnar Árnason hirðhagfræðingur LÍÚ, sá sem mat stöðu íslenska þjóðarbúsins gríðarlega sterka skömmu fyrir hrun og lagði til í ljósi þess gífurlegan niðurskurð á aflaheimildum.
Ekki veit ég hvert svarið verður við spurningunni sem varpað er fram á fundinum, en eitt er víst að ekki hefur fylgt ráðum ræðumanna mikil blessun fyrir almenna félagsmenn ASÍ.
Yfirvarp niðurlægðra Vinstri grænna
Steingrímur J. Sigfússon hefur gengið mjög hart fram gegn óánægðum þingmönnum Vg, sem hafa ólíkt formanni flokksins eitthvað viljað standa vörð um stefnu og kosningamál Vg. Villikettirnir hafa smám saman verið gerðir áhrifalausir innan flokksins og hafa nokkrir þeirra séð ráð sitt óvænna og gengið úr flokknum. Að vísu fær Ögmundur enn að dingla eitthvað sem innanríkisráðherra og hnykla vöðvana gagnvart ógæfufólki sem klæðist leðurbúningum í vélhjólaklúbbum, á sama tíma og fjárglæframennirnir sem settu landið á hausinn, fá enn að stunda sinn leik með tilheyrandi afskriftum og arðgreiðslum úr skúffufyrirtækjum.
Síðasta atlaga Steingríms snéri að Jóni Bjarna og meðreiðasveini hans Bjarna Harðarsyni en þeir voru settir út úr ráðneytinu um áramótin.
Hingað til hafa villikettirnir ekki þorað i beina andstöðu við Steingrím J. en í þess stað staðið fyrir smávægilegum skærum hér og þar. Engin alvara var á bak við mótframboðin sem voru á síðasta landsfundi gegn Steingrími J. þó svo allt logaði í óánægju. Ekkert skipulag virðist heldur vera kjarkur til þess að kljúfa sig frá Evrópumiðaðri forystu Vg og fella ríkisstjórnina.