Framsóknarflokkurinn

Afsagnarfælni

Af hverju þjást íslenskir „leiðtogar“ af afsagnarfælni? Hví geta menn ekki með fullri reisn viðurkennt mistök og axlað ábyrgð? Hvað veldur því að jafnvel þegar, með semingi þó, mistök eru viðurkennd, að viðkomandi telji greinilega engan betur til þess að fallinn að bæta fyrir þau en sig sjálfan?

Sérstaklega er þetta sérkennilegt þegar við sitjum uppi með oft sjálfvalda leiðtoga eins og þá sem stjórna lífeyrissjóðunum. Eflaust er partur af vandanum að stjórnarseta í lífeyrirsjóði er bitlingur sem borgað er fyrir. Ekki það að það eigi ekki að borga fyrir þá aukavinnu sem fólk leggur á sig í tengslum við slíkt, og sem er einnig í samræmi við þá ábyrgð sem hlutverkinu fylgir. En einmitt þess vegna verða orð og athafnir að vera til samræmis. Stjórnarseta í lífeyrissjóði er ekki ævistarf, það er fulltrúastarf og þar eiga að vera regluleg skipti á fulltrúum. Og í kjölfar upplýsinga eins og þeirra sem fram koma í hrunskýrslunni um lífeyrissjóðina er það sjálfsagt og eðlilegt að þeir sem voru í stjórnum sjóðanna á þeim tíma segi af sér.

Ætti það að vera í samræmi við sómakennd viðkomandi.

Skortur á leiðindaskjóðum

Eflaust má skrifa tap lífeyrissjóðanna á hruninu aðallega á fernt – ytri áföll, vanhæfni, frænd- og vinahygli.

Kannski má skrifa svo að segja allt hrunið upp á þetta fernt.

Það sem tengdi þetta svo allt saman var það að enginn vildi vera leiðinlegur. Vera gleðispillir í partíi aldarinnar.

Á Íslandi hefur okkur nefnilega verið tamt að líka illa við liðið sem spyr óþægilegu spurninganna, bendir á bjálkana í augum landans eða opinberar innanmeinin.

Leiðindaskjóður.

Upp og niður þjóðfélagsstigann hafa þær verið færðar til um bekk, milli skóla og milli starfa.

Jafnvel haft að spotti og spé. Spyrjið t.d. femínista eða fórnarlömb eineltis. Og skyldi litli símamaðurinn ennþá vinna hjá símanum? Meira að segja þegar Davíð Oddsson varð fúll og tók krónurnar sínar úr Kaupþingi,  en í það skipti hafði hann fulla og réttmæta ástæðu til að vera fúll, þá híuðum við á hann.

Í staðinn fyrir að taka krónurnar okkar líka út.

Valkostirnir voru reyndar heldur ekkert skárri og kannski erfitt fyrir okkur öll að gerast kúnnar hjá Sparisjóði Suður-Þingeyinga.

Gæludýraeinangrun

Nú fyrr í vikunni fóru fram umræður á Alþingi um lagafrumvarp þriggja þingmanna um breytingu á lögum um innflutning dýra. Skal tekið fram strax í upphafi að hvað þetta mál varðar er ég ekki hlutlaus: Ég styð þá breytingu sem þingmennirnir leggja til.

Fimm bestu - fjögurra ára hlé

Ekkert af stórtíðindum undanfarinna ára gat vakið mig af bloggblundinum. En svo langaði mig að gera kjánalegan topp fimm lista og þá fer maður auðvitað af stað...

Mér þykir mjög gaman af því að hlusta á kraftballöður. Þær áttu vitaskuld sitt blómaskeið á níunda áratugnum og snemma á þeim tíunda. Mér þykir hrein unun að hlusta á alla þessa skemmtilegu dramatík.

5. Bon Jovi - Always

Þetta lag er bara mjög vel heppnað.

4. Guns N´Roses - November rain

Þetta lag setur ný viðmið fyrir dramatík, bæði í uppbyggingu, laglínu, texta og ekki síst myndbandi...

3. Scorpions - Still loving you

Þetta er bara hrein snilld. Endalaus þungi á bak við en öskrandi gítar og endalaust há sönglína. Þetta er fegurðin ein.

ESB, EES, EFTA og Sinalco

Þegar að EES umræðan stóð sem hæst fór einn harðvítugur andstæðingur EES og EFTA fram með auglýsingaherferð í íslenskum fjölmiðlum. Var þar á ferð eigandi og forvígismaður öflugs íslensks fyrirtækis sem í dag er í fréttum fyrir það að standa fyrir endurinnflutningi á hinum magnaða þýska gosdrykk Sinalco. Þökk sé viðskiptasamningum og -samstarfi eins og EES og EFTA er Helga þetta kleift og ber því að fagna. Er það sammerkt með Helga og mörgum öðrum andstæðingum viðskiptafrelsis og Evrópusamstarfs að betra er að fylgjast með því sem þeir gera en því sem þeir segja. Sama á t.d. við um innanríkisráðherrann þegar hann talar gegn dagpeningafíkn ríkisstarfsmanna rétt áður en hann stígur upp í vél í dagpeningaferð til útlanda.

En í þessum efnum sem öðrum er batnandi mönnum best að lifa. Helgi flytur inn Evrópudrykk og Ögmundur biður afsökunar. Þetta er allt að koma og ESB aðild augljóslega rétt handan við hornið…!

Verðbólgugreind fjárlög takk

Einhverjir létu það fara í taugarnar á sér þegar Fjármálaráðuneytið bryddaði upp á þeirri ágætu nýjung og tilraunaverkefni að ástunda kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð.

Í ljósi nýjustu fregna af aukinni verðbólgu hér á landi sem virðist fyrst og fremst skýrast af hækkun opinberra gjalda væri hins vegar vegar verðugt verkefni fyrir Fjármálaráðuneytið að ástunda einnig verðbólgugreinda hagstjórn og fjárlagagerð.

Og stýra skattheimtu með þeim hætti að það hafi sem minnst áhrif til hækkunar verðbólgu – og helst til lækkunar.

Því það er eitthvað algerlega galið við það að aukin skattheimta skuli skila fleiri krónum úr vösum skattgreiðenda og skuldara til fjármagnseigenda en í ríkissjóð.

 

Upp úr afskriftahjólförunum?

Það eru óneitanlega vonbrigði að greinargerð Hagfræðistofnunar skuli, þvert á væntingar, verða til þess að æsa frekar elda ósættis varðandi leiðréttingar á stökkbreytingu húsnæðislána.

Sitt sýnist hverjum um gæði greinargerðarinnar, en varla getur það talist fullnægjandi af fulltrúm stofnunarinnar að vísa gagnrýni, þó hvöss sé, einfaldlega á bug.

Það er hinsvegar tap okkar allra að meðhöndlun stökkbreyttra lána og tillögur í þeim efnum fengu strax á sig pólitískan blæ fljótlega eftir hrun. Mörgum reyndist ófært að fjalla málefnalega um þær tillögur sem fram komu og einhentu sér strax í pólitískar skotgrafir. Er skýrasta dæmið þar um viðbrögðin við 20% leið þeirri sem Framsóknarflokkurinn lagði fram á sínum tíma. Sjálfur er ég sannfærðari nú en þá að slík aðgerð strax í upphafi hefði verið skársti valkosturinn, þó ekki væri sú aðgerð gallalaus og ekki hefði hún dugað til að leysa vanda allra.

Hver verða eftirmál þingsályktunartillögunnar?

Nú liggur fyrir að Alþingi mun taka afstöðu til þess hvort draga eigi ákæru á hendur Geir H Haarde til baka.

Verði ályktunin samþykkt og ákæran dregin til baka, mun það valda miklum viðbrögðum í samfélaginu, sagt verður að stjórnmálastéttin verndi sjálfa sig og ekki kæmi mér á óvart að mótmæli brytust út í framhaldinu. Staða Geirs og hinna ráðherrana sem til stóð að ákæra yrði algerlega í lausu lofti. Í raun var hann sviptur ærunni með því að ákæra hann, en það er erfitt að sjá að afturköllun ákærunnar muni gefa honum hana aftur.

Verði ályktunin felld, eru Alþingismenn komnir í athyglisverða stöðu, sérstaklega þeir sem skipt hafa um skoðun í málinu. Veltur það á því hvort Geir verður fundinn sekur eða verði sýkn saka.

Verði Geir sýknaður, verða þeir sem vildu ákæra ásakaðir um að hafa ástundað nornaveiðar. Það er reyndar svo stór hópur að það mun líklegast ekki hafa mikil áhrif á einstaka þingmenn. Hin þrjú sem undir voru í upphafi eru þá líklegast laus allra mála.

110% hamingja

Ert þú ein(n) af þessum heppnu sem hefur fengið húsnæðislánið sitt afskrifað samkvæmt 110% reglunni? Hér eru nokkar tölur til að velta fyrir sér á meðan þú skálar fyrir þeirri gæfu.

Ef lánið þitt eftir afskrift er 30 milljónir þá er það niðurstaða bankans þíns og fasteignasalans sem vann fyrir hann við matið að verðmæti fasteignar þinnar sé 27 milljónir og 272,272 krónur.

Líklegast er þó, nema fasteignin þín sé í allra vinsælustu hverfum höfuðborgarsvæðisins, að raunverulegt markaðsverð sé 23 – 25 milljónir, þ.e.a.s. ef yfirhöfuð er virkur fasteignamarkaður þar sem fasteignin þín er.

Á næstu fimm árum, m.v. 5% verðbólgu og 4,3% vexti af láninu þínu, mun lánið hækka úr 30 milljónum í rúmar 36 milljónir.

Á þessum tíma munt þú greiða af láninu u.þ.b. 9 milljónir.

Neikvætt eigið fé þitt í fasteigninni mun lagast lítið eitt. Ef raunverulegt markaðsverð var 25 milljónir verður eignin þín kannski komin í tæpar 32 milljónir, ef markaðsverð heldur í við verðbólgu.

Hengjum ekki bakara fyrir smið

Í þessu saltmáli mega menn ekki missa sjónar á aðalatriðum og enda á því að hengja bakara fyrir smið

Ábyrgðin er fyrst matvælafyrirtækjanna sem notuðu saltið.

Varan er greinilega merkt iðnaðarsalt, ef myndir sem birtar hafa verið í fjölmiðlum eru réttar, þannig að í móttökueftirliti matvælafyrirtækjanna ætti þetta að uppgötvast, hafi þeir sem pöntuðu fyrir viðkomandi fyrirtækis klikkað í innkaupum.

Ölgerðin ber fyrst ábyrgð, hafi hún afgreitt þetta salt sem annað en það sem það er. Þar hlýtur lýsing á reikningi að vera skýr. Merkingar vörunnar eru amk alveg skýrar, séu myndir sem birtar hafa verið í fjölmiðlum af viðkomandi vöru.

Eftirlitsaðilum er ekki ætlað að finna svona lagað. Þeim er ætlað að fylgjast með því að fyrirtækin hafi kerfi sem uppgötva svona lagað.

Ef umræðan spinnst upp í að menn fari fram á að eftirlitsaðilar nái að koma í veg fyrir svona lagað í sínu eftirliti, hvernig samfélag yrði það, hvaða heimildir þyrftu eftirlitaðilarnir að hafa, hversu marga starfsmenn þyrfti til að sinna því eftirliti og hversu mikið myndi það kosta?

Viljum við búa í samfélagi þar sem eftirlitsiðnaðurinn nær öllum svona málum?

Nei.

Syndicate content