Krepputal

Síbreytilegar fréttaskýringar. Með tímanum verða vonandi fullunnar skýringar á flestum hliðum viðskipta- og stjórnmálalífsins sem markmiðið er að skilja eftir röngu megin við kreppu.

Athugasemdir sem gerðar eru við færslur í þessum flokki verða nýttar til þess að breyta færslunum eftir því sem efni standa til. Athugasemdir sem bæta engu við færslurnar verða fjarlægðar. Almennar umræður með skoðunum lesenda á því viðfangsefni sem rætt er um hverju sinni, má finna annars staðar hér á Tíðarandanum.

Stærstu skuldarar Kaupþings korter í hrun

Hún er ótrúleg greinargerðin sem birst hefur á hinum ýmsu vefsíðum undanfarna daga. Hún á uppruna sinn af stjórnarfundi Kaupþings 25. september 2008, þeim hinum sama og fjallaði um niðurfellingu á ábyrgðum starfsmanna bankans.

 

Á þessari vefsíðu mun margs konar úrvinnsla þessarar greinargerðar birtast, en þangað til er hún hér í heilu lagi, gjörið svo vel.

Dótturfélagið í Kópavogi

Fjölmiðlar hafa greint frá því undanfarnar vikur að Kópavogsbær hefur skipt við Frjálsa Miðlun, fyrirtæki í eigu dóttur Gunnars Birgissonar, fyrir tugi milljóna króna á valdatíma Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Nú síðast hefur endurskoðunarfyrritækið Deloitte lagt fram greinargerð sem fyrirtækið vann fyrir bæjarráð Kópavogs um þessi viðskipti.

 

Í þeim gögnum sem fram hafa verið lögð kennir ýmissa grasa og greiningar á þeim munu birtast hér smám saman, en byrjum á því myndræna sem ekki hefur verið sýnt fram á áður.

 

Finndu Finn

Það hefur verið með ólíkindum að fylgjast með fréttum og uppljóstrunum undanfarin misseri sérstaklega þegar horft er til þess hversu víða armar Finns Ingólfssonar hafa legið. Nú síðast voru auðveldlega rakin tengsl Arnars Björnssonar hjá Reykjavík Invest og Reykjavík Capital við Finn. Sú umræða spratt upp í tengslum við sölu skilanefndar Landsbankans á hlutum í Byr til Arnars.

 

Tengsl Finns Ingólfssonar við hina ýmsu arma viðskiptalífsins verða rakin hér.

Útrásarvíkingarnir að byrja að falla

 

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur úrskurðað Magnús Þorsteinsson fyrrverandi viðskiptafélaga Björgólfsfeðga gjaldþrota og tók ekki til greina kröfu lögmanns Magnúsar um að breytt lögheimili hefði áhrif á niðurstöðu.

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/05/04/fallist_a_gjaldthrotakrofu/

 

Spurningin er hvort þetta sé vísir að því sem koma skal.

 

Seinna sama dag bárust fyrstu fréttir af falli Björgólfs Guðmundssonar sem skráður er persónulega ábyrgur fyrir 58 milljörðum króna hjá Landsbankanum, þar sem hann var sjálfur stjórnarformaður.

http://mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2009/05/04/abyrgur_fyrir_58_milljordu...

Tugmilljóna styrkveitingar einstakra félaga til Sjálfstæðisflokksins

Fréttir bárust af því að FL Group hafi styrkt Sjálfstæðisflokkinn um þrjátíu milljónir króna aðeins nokkrum dögum fyrir gildistöku laga sem settu hámark á framlög til stjórnmálaflokka. Þann 1. janúar 2007 tóku gildi lög sem settu 300.000 króna þak á árlegt framlag til stjórnmálaflokka á Íslandi. Fréttastofa Stöðvar 2 hafði séð gögn sem sýna að 29. desember 2006 hafi 30 milljónir króna verið yfirfærðar af reikningi FL Group inn á reikning Sjálfstæðisflokksins. Lögin voru afgreidd 21. desember, átta dögum fyrir millifærsluna.

 

Hrægammar kreppunnar

Þeir koma upp í hverri einustu kreppu hrægammarnir sem ætla að græða á óförum annarra. Frásagnir fyrir nokkrum vikum síðan um tilraunir Straums til þess að verða sér úti um gjaldeyri með því að sniðganga gjaldeyrishöftin eru dæmi um slíka hrægamma. Frásagnir morgunsins (8. apríl 2009) af starfsmönnum Askar Capital virðast hins vegar ennþá grófari.

Þremenningarnir, sem urðu uppvísir  að brotum á gjaldeyrisviðskiptum hjá Askar Capital, nýttu sér þann mismun sem er á gengisskráningu Seðlabanka Íslands og skráðu gengi gjaldmiðla erlendis. [...]

Ófyrirleitnar lánveitingar til eigenda Kaupþings

Sjá einnig færsluna 100 milljarða millifærslur Kaupþings.

 

Fyrst kom teaser á mbl.is:

Kaupþing lánaði stærstu eigendum sínum og tengdum aðilum hundruð milljarða króna, samkvæmt lánabók Kaupþings, en Morgunblaðið hefur hluta hennar undir höndum.

Um er að ræða stöðu útlána í lok júní 2008, þremur mánuðum fyrir hrun bankans. Stór hluti lánanna var veittur til eignarhaldsfélaga sem skráð eru í Hollandi og á Tortola-eyju, sem er ein af Bresku Jómfrúreyjunum.

Óhæði dómsvaldsins?

Allir sitjandi hæstaréttardómarar voru skipaðir af dómsmálaráðherrum Sjálfstæðisflokksins. Margir vilja meina að skipunin hafi ekki alltaf verið fagleg:

 

Sem dæmi um stöðuveitingar í tíð Davíðs má nefna að fjórir dómarar eru úr hópi nánustu skyldmenna hans. Einnig eru tveir bridgefélagar hans, fyrrverandi eða/og núverandi, dómarar.

Þetta eru:

Þorsteinn Davíðsson,
Hervör Þorvaldsdóttir,
Ólafur Börkur Þorvaldsson,
Sigríður Ólafsdóttir,
Jón Steinar Gunnlaugsson og
Árni Kolbeinsson

Þorsteinn er sonur Davíðs. Hervör og Ólafur Börkur eru systkini. Þessi systkini, Sigríður og Davíð eru systkinabörn.

Jón Steinar og Árni Kolbeinsson voru bridgefélagar Davíðs og eru etv enn.

Syndicate content