S-hópurinn
Finndu Finn
Það hefur verið með ólíkindum að fylgjast með fréttum og uppljóstrunum undanfarin misseri sérstaklega þegar horft er til þess hversu víða armar Finns Ingólfssonar hafa legið. Nú síðast voru auðveldlega rakin tengsl Arnars Björnssonar hjá Reykjavík Invest og Reykjavík Capital við Finn. Sú umræða spratt upp í tengslum við sölu skilanefndar Landsbankans á hlutum í Byr til Arnars.
Tengsl Finns Ingólfssonar við hina ýmsu arma viðskiptalífsins verða rakin hér.
Alfesca hf.
Kjalar Invest B.V.
http://news.icex.is/newsservice/MMIcexNSWeb.dll/newspage?language=IS&pag...
http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2007/06/22/bref_kjalar_og_eglu_i_...
http://www.visir.is/article/20071207/VIDSKIPTI06/112070210
http://www.visir.is/article/20080305/VIDSKIPTI0803/103050117/0/VIDSKIPTI01
Kjalar invest bv. er íslenskt fjárfestingafélag skráð í Hollandi.
Kjalar er annar stærsti hluthafi í Kaupþing banka með 9% hlut. Stærsti hluthafi í Alfesca með 36% hlut. Það á 50% í Mastur hf., á móti Samvinnulífeyrissjóðnum, sem á 11% í Samskip hf.
Hjörleifur Jakobsson er forstjóri Kjalars og Ólafur Ólafsson er stjórnarformaður. (Wikipeda.org, 28.01.07)
Eignir fyrr og nú:
Kaupþing banki hf.
Alfesca hf.
Egla hf.
Egla hf. var stofnað í tengslum við kaup S-hópsins á 45,8% hlut ríkisins í Búnaðarbankanum árið 2003. Stofnendur virðast hafa verið Ker hf. og Vátryggingafélag Íslands (skoða nánar samantekt Ríkisendurskoðunar, http://www.rikisend.is/files/skyrslur_2006/Fjarlaganefnd_samantekt.pdf).
Skömmu eftir stofnun var þýskum aðila, Hauck og Aufhäuser seldur 50% hluti í félaginu með því að breyta hluta af láni frá þeim í hlutafé. Rekja síðan allar hlutafjáraukningarnar og breytingarnar á hlutafénu sem gerðar voru á einu ári eða svo, sbr. skýrslu r.end.
Óunnið vegna þessarar færslu
http://news.icex.is/newsservice/MMIcexNSWeb.dll/newspage?language=IS&pag...
http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2007/06/22/bref_kjalar_og_eglu_i_...
Fjárfestingafélagið Kjalar
Fjárfestingarfélagið Kjalar er í 94% eigu Ólafs Ólafssonar
Úr bréfi sem sent var Silfri Egils:
Hjörleifur hjá Kjalar sagði að ef þeir hefðu fengið evrurnar fyrir fall bankanna (þeir áttu ekki að fá þær fyrr en 14. okt en þá voru bankarnir fallnir) þá hefðu þeir getað selt þær fyrir heilmikla peninga vegna þess að eftir fall bankanna var ekki hægt að ná í evrur og því hefði verið hægt að selja þær á háu verði.
...
Kjalar setti 45 milljarða inn í Kaupþing í janúar 2008 og vill fá 188 milljarða til baka í október sama ár. (Silfur Egils, 09.01.09 (finna frumheimild))
Gift fjárfestingafélag hf.
(Umfjöllun um meðferð félagsins er að finna í krepputalsútgáfunni.)
Í júní 2007 var tekin ákvörðun um að slíta Eignarhaldsfélagi Samvinnutrygginga og flytja eignir félagsins í nýtt hlutafélag, Gift hf. Eigendur áttu að verða annars vegar tryggingartakar í Samvinnutryggingum (og Brunabótafélaginu?) sem höfðu verið í viðskiptum við Samvinnutryggingar síðasta árið fyrir sameiningu (?1987+1988?) og voru enn viðskiptavinir VÍS á tilteknum degi á árinu 2006(2007?) og hins vegar sjálfseignarstofnun að nafni Samvinnusjóðurinn, sem eignast átti hlut þeirra sem hættir voru viðskiptum eða fallið höfðu frá (eignarréttur átti ekki að erfast til maka eða annarra erfingja við andlát tryggingartaka).
Langflug ehf.
Langflug var stofnað haustið 2006 um eignarhlut sem Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga keypti í Icelandair Group hf.
Eignir:
Icelandair Group 32% (sjá breytingu á hlutfalli í skýringum á samskiptum FS7 ehf. og Langflugs hér fyrir neðan).
Eigendur.
Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga
FS7 ehf. (byrjaði í ca 1%)
Hlutur FS7 ehf. stækkaði í (?rúm?) 25% í desember 2006 þegar félagið keypti 25% hlut í félaginu fyrir einn milljarð króna (á genginu 1,00) auk þess að taka á sig ábyrgð á fjórðungshlut skulda Langflugs.
Samvinnusjóðurinn ses.
Samvinnusjóðurinn er sjálfseignarstofnun sem eignast átti þá hluti í Gift hf. sem ekki yrði ráðstafað til viðskiptavina gömlu Samvinnutrygginga vegna þess að þeir voru látnir eða uppfylltu ekki lengur það skilyrði sem sett var, að vera í viðskiptum við VÍS á ákvörðunardegi fulltrúaaráðsins.
Finnur Ingólfsson er stjórnarformaður Samvinnusjóðsins.
Eignir fyrr og nú:
Gift fjárfestingafélag
Ker hf.
Fyrrverandi eigandi olíufélagsins Esso.
Þátttakandi í olíusamráðinu um árið.
Tengsl við samvinnuhreyfinguna og S-hópinn.
Eignir:
Keypti Búnaðarbankann árið 2003 (sem hluti af S-hópnum). Átti þá eftirfarandi eignir.
Olíufélagið (?allt?, selt ?dags)
Samskip tæplega 50%
SÍF, 14% (síðar sameinað Sjóvík og nafni breytt í Icelandic Group).
Vinnslustöðin, 11%.
Eignastaða í dag:
Eigendur:
Ólafur Ólafsson
Eignir fyrr og nú:
VÍS, Vátryggingafélag Íslands
Gift - Samvinnutryggingar
Almenn færsla undir "tengslanet" um tilurð félagsins og heildaryfirlit yfir eignir. Þessi færsla er um tengslin og misnotkunina.
Hlutafélagið Gift var stofnað til þess að ráðstafa til rétthafa Samvinnutrygginga eignum félagsins við slit Eignarhaldsfélags Samvinnutrygginga. Sagt var frá því sumarið 2007 að félagið ætti uþb 30 ma sem myndu ráðstafast til rétthafanna, rétt rúmu ári síðar skilaði skilanefnd eignarhaldsfélagsins umboði sínu til fulltrúaráðs þess sem fór með völdin í eignarhaldsfélaginu sökum þess að skilanefndin taldi engar eignir til staðar til þess að ráðstafa til rétthafanna. Á svipuðum tíma var greint frá því að Gift skuldaði 30ma umfram eignir.