Þórólfur Gíslason
Merkar starfsstöðvar: Ártorg 1, Sauðárkróki
Það er ansi lífleg starfsemi með skráða starfsstöð í húsi Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki:
Kaupfélag Skagfirðinga
(skrifa yfirlit)
http://www.ogmundur.is/annad/nr/3414/
finna einnig færsluna frá bloggi Sigurjóns M. Egilssonar um hringavitleysuna í tengslum félaganna í eigu S-hópsins frá því í desember.
AB57 ehf.
AB57 ehf. er félag í eigu Kaupfélags Skagfirðinga.
AB57 ehf. seldi FS7 ehf. (Finni Ingólfssyni) hlut í Icelandair sem hann síðar seldi áfram til Fjárfestingafélagsins Máttar.
Gift fjárfestingafélag hf.
(Umfjöllun um meðferð félagsins er að finna í krepputalsútgáfunni.)
Í júní 2007 var tekin ákvörðun um að slíta Eignarhaldsfélagi Samvinnutrygginga og flytja eignir félagsins í nýtt hlutafélag, Gift hf. Eigendur áttu að verða annars vegar tryggingartakar í Samvinnutryggingum (og Brunabótafélaginu?) sem höfðu verið í viðskiptum við Samvinnutryggingar síðasta árið fyrir sameiningu (?1987+1988?) og voru enn viðskiptavinir VÍS á tilteknum degi á árinu 2006(2007?) og hins vegar sjálfseignarstofnun að nafni Samvinnusjóðurinn, sem eignast átti hlut þeirra sem hættir voru viðskiptum eða fallið höfðu frá (eignarréttur átti ekki að erfast til maka eða annarra erfingja við andlát tryggingartaka).
S-hópurinn
S-hópurinn er ekki eiginlegt félag heldur nafnið á þeim hópi fyrirtækja sem sameiginlega keypti Búnaðarbankann árið 2003. Hópurinn dró (?dregur) nafn sitt af tengslum sínum við samvinnuhreyfinguna gömlu, þar á meðal Samband íslenskra samvinnufélaga.
Keyptur var 45,8% hlutur í Búnaðarbankanum og kaupendur voru Ker, VÍS, Samvinnulífeyrissjóðurinn og Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga.
Helstu persónur og leikendur í S-hópnum voru (eru?):
Finnur Ingólfsson
Helgi S. Guðmundsson
Ólafur Ólafsson
Þórólfur Gíslason
Óunnið vegna þessara tengslanets
(tengja á "term" fyrir hvern fyrir sig, sem birtir lista yfir tengdar færslur)
VÍS, Vátryggingafélag íslands
(skrifa um hvenær Finnur Ingólfsson og félagar "eignuðust" VÍS).
Eigendur VÍS áður en félagið var selt til Exista voru m.a.:
Kaupþing 29,6% (keypti af Keri)
Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga 25,8%
Hesteyri 24,7%
Eignarhaldsfélagið Andvaka 5,3%
(vantar eigendur 4,6% hluta)
Stjórnarformaður á þeim tíma var Þórólfur Gíslason.
Eignir VÍS á þessum tíma, m.a.:
Samskip
SÍF
Vinnslustöðin
FISK Seafood (áður Fiskiðjan Skagfirðingur)
FISK Seafood (áður Fiskiðjan Skagfirðingur) er dótturfélag Kaupfélags Skagfirðinga.
Eignir FISK:
Hesteyri ehf. (líkl. 33% hlutur).
Eignarhaldsfélagið Samvinnutryggingar
Þessi færsla fjallar um form félagsins, eignir þess og eignarhald. Umfjöllun um misbeitingu félagsins og tengsl þess við hin ýmsu viðskipti í gegnum tíðina er að finna í öðrum þræði.
Samvinnutryggingar, upphaflega tryggingafélagið, var svokallað gagnkvæmt félag, þ.e. eigendur töldust þeir sem voru í viðskiptum við félagið á hverjum tíma. Með stjórn Eignarhaldsfélags Samvinnutrygginga eftir að starfsemi félagsins hafði verið flutt inn í VÍS, fer svokallað fulltrúaráð sem skipað er 24 framsóknarmönnum (finna hvernig skipað, skilst að það hafi endurnýjað sig innan frá, þ.e. fulltrúar valið nýja fulltrúa).
Gift - Samvinnutryggingar
Almenn færsla undir "tengslanet" um tilurð félagsins og heildaryfirlit yfir eignir. Þessi færsla er um tengslin og misnotkunina.
Hlutafélagið Gift var stofnað til þess að ráðstafa til rétthafa Samvinnutrygginga eignum félagsins við slit Eignarhaldsfélags Samvinnutrygginga. Sagt var frá því sumarið 2007 að félagið ætti uþb 30 ma sem myndu ráðstafast til rétthafanna, rétt rúmu ári síðar skilaði skilanefnd eignarhaldsfélagsins umboði sínu til fulltrúaráðs þess sem fór með völdin í eignarhaldsfélaginu sökum þess að skilanefndin taldi engar eignir til staðar til þess að ráðstafa til rétthafanna. Á svipuðum tíma var greint frá því að Gift skuldaði 30ma umfram eignir.