Leppur
A-Holding
A-Holding er eitt fyrirtækja Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Félagið var upphaflega stofnað vegna fyrirhugaðra kaupa á Arcadia í Bretlandi en síðar notað til þess að kaupa stofnfjárhluti í Sparisjóði Hafnarfjarðar.
Stím ehf
Úr fréttatilkynningu stjórnarformannsins eftir mikla fjölmiðlaumfjöllun:
Hlufhafalisti Stím ehf:
32,5% Félag stofnað af gamla Glitni sem ætlað var til endursölu
15% Gunnar Torfason
10% SPV fjárfesting hf.
10% BLÓ ehf. - félag að fullu í eigu Óskars Eyjólfssonar
10% Ofjarl ehf. – félag að fullu í eigu Jakobs Valgeirs Flosasonar og Ástmars Ingvarssonar
8,75% Viðskiptavinir Saga Capital fjárfestingabanka
6,25% Saga Capital fjárfestingabanki
2,5% Jakob Valgeir Flosason
2,5% Ástmar Ingvarsson
2,5% Flosi Jakob Valgeirsson.
Markaðsvæðing sparisjóðanna
Gunnar Axel Axelsson hefur gert mikið í því að upplýsa alþjóð um markaðsvæð
Leynifélagið Stím
Margt hefur verið skrafað og skrifað um félagið Stím sem stofnað var í fyrra og keypti stóra hluti í Glitni og FL Group á síðasta ári. Hafa margir talið að hér sé um mikið leynifélag að ræða sem notað hafi verið til þess að véla með verð á hlutum í Glitni og FL Group. Morgunblaðið birti langa fréttaskýringu eftir Agnesi Bragadóttur þar sem böndin voru talin berast til Jóns Ásgeirs og Hannesar Smárasonar, sem að sögn stóðu að stofnun einkahlutafélagsins FS 37 ehf. sem síðar var breytt í Stím ehf. Síðar bárust af því fréttir að Pálmi Haraldsson í Fons hefði stofnað FS 37 ehf. og lánað til þess félags fé frá öðru einkahlutafélagi úr hans röðum, FS 38 ehf.