Kristinn Hallgrímsson
Merkar starfsstöðvar: Suðurlandsbraut 18
Á Suðurlandsbraut 18 eru yfir 100 félög til húsa, ef marka má frétt RÚV frá 17. janúar 2009.
Rétt er að ítreka staðsetning fyrirtækja í húsi Lögmanns S-hópsins gerir félag ekki sjálfkrafa grunsamlegt, en tíminn mun leiða í ljós hversu mörg þessara félaga munu reynast tengjast honum eða öðrum þeim sem um er fjallað á þessum vef.
Egla hf.
Egla hf. var stofnað í tengslum við kaup S-hópsins á 45,8% hlut ríkisins í Búnaðarbankanum árið 2003. Stofnendur virðast hafa verið Ker hf. og Vátryggingafélag Íslands (skoða nánar samantekt Ríkisendurskoðunar, http://www.rikisend.is/files/skyrslur_2006/Fjarlaganefnd_samantekt.pdf).
Skömmu eftir stofnun var þýskum aðila, Hauck og Aufhäuser seldur 50% hluti í félaginu með því að breyta hluta af láni frá þeim í hlutafé. Rekja síðan allar hlutafjáraukningarnar og breytingarnar á hlutafénu sem gerðar voru á einu ári eða svo, sbr. skýrslu r.end.
Óunnið vegna þessarar færslu
http://news.icex.is/newsservice/MMIcexNSWeb.dll/newspage?language=IS&pag...
http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2007/06/22/bref_kjalar_og_eglu_i_...
Fjárfestingafélagið Kjalar
Fjárfestingarfélagið Kjalar er í 94% eigu Ólafs Ólafssonar
Úr bréfi sem sent var Silfri Egils:
Hjörleifur hjá Kjalar sagði að ef þeir hefðu fengið evrurnar fyrir fall bankanna (þeir áttu ekki að fá þær fyrr en 14. okt en þá voru bankarnir fallnir) þá hefðu þeir getað selt þær fyrir heilmikla peninga vegna þess að eftir fall bankanna var ekki hægt að ná í evrur og því hefði verið hægt að selja þær á háu verði.
...
Kjalar setti 45 milljarða inn í Kaupþing í janúar 2008 og vill fá 188 milljarða til baka í október sama ár. (Silfur Egils, 09.01.09 (finna frumheimild))
Gift fjárfestingafélag hf.
(Umfjöllun um meðferð félagsins er að finna í krepputalsútgáfunni.)
Í júní 2007 var tekin ákvörðun um að slíta Eignarhaldsfélagi Samvinnutrygginga og flytja eignir félagsins í nýtt hlutafélag, Gift hf. Eigendur áttu að verða annars vegar tryggingartakar í Samvinnutryggingum (og Brunabótafélaginu?) sem höfðu verið í viðskiptum við Samvinnutryggingar síðasta árið fyrir sameiningu (?1987+1988?) og voru enn viðskiptavinir VÍS á tilteknum degi á árinu 2006(2007?) og hins vegar sjálfseignarstofnun að nafni Samvinnusjóðurinn, sem eignast átti hlut þeirra sem hættir voru viðskiptum eða fallið höfðu frá (eignarréttur átti ekki að erfast til maka eða annarra erfingja við andlát tryggingartaka).