Lýður Guðmundsson

Ófyrirleitnar lánveitingar til eigenda Kaupþings

Sjá einnig færsluna 100 milljarða millifærslur Kaupþings.

 

Fyrst kom teaser á mbl.is:

Kaupþing lánaði stærstu eigendum sínum og tengdum aðilum hundruð milljarða króna, samkvæmt lánabók Kaupþings, en Morgunblaðið hefur hluta hennar undir höndum.

Um er að ræða stöðu útlána í lok júní 2008, þremur mánuðum fyrir hrun bankans. Stór hluti lánanna var veittur til eignarhaldsfélaga sem skráð eru í Hollandi og á Tortola-eyju, sem er ein af Bresku Jómfrúreyjunum.

Félögin á Tortola

136 félög sem skráð eru á Tortola fengu leyfi til að starfa á Íslandi á árunum 2000-2008. Morgunblaðið hefur lagt í mikla heimildarleit vegna þessa. Eftirfarandi tvær greinar birtust í Viðskiptablaði Morgunblaðsins 12. febrúar 2009.

 

Meiður ehf.

Meiður ehf. er fjárfestingarfélag og hefur að markmiði að kaupa og selja verðbréf, lánastarfsemi og aðra umsýslu tengda þeim viðskiptum. Það var stofnað af nokkrum sparisjóðum í apríl 2001. Í október 2002 gerðist Kaupþing banki hluthafi í félaginu, í tengslum við kaup á hlutum í Kaupþingi banka sem áður voru í eigu Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis.

Fram til 27.12.02 átti Kaupþing 43,2% og 56,8% hlutur var í eigu Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, Sparisjóðsins í Keflavík, Sparisjóðabanka Íslands hf., Sparisjóðs Mýrasýslu, Sparisjóðs Húnaþings og Stranda, Sparisjóðs Siglufjarðar, Sparisjóðs Svarfdæla og Sparisjóðs Vestfirðinga.

 

Bakkabræður sf.

kennitala: 590598-2089

Bakkabræður sf. er sameignarfélag bræðranna Ágústs og Lýðs Guðmundssona sem hefur m.a. átt hlut í Kaupþingi.

 

Bakkabræður sf. er skráð til heimilis að Ármúla 3 þar sem fjöldi annarra félaga er skráður með starfsstöð.

Syndicate content