KPMG
Merkar starfsstöðvar: Borgartún 27
KPMG er væntanlega með tvær númeraseríur í gangi, AB# og FS#.
Félögin á Tortola
136 félög sem skráð eru á Tortola fengu leyfi til að starfa á Íslandi á árunum 2000-2008. Morgunblaðið hefur lagt í mikla heimildarleit vegna þessa. Eftirfarandi tvær greinar birtust í Viðskiptablaði Morgunblaðsins 12. febrúar 2009.
Fjöldaframleidd skúffufyrirtæki endurskoðenda- og lögfræðiskrifstofa
Fjölmargir aðilar hafa tekið að sér að stofna fyrirtækjarunur til þess að selja sem tilbúnar vörur. Ávinningur kaupandans hefur verið álitinn tvíþættur:
* að losna við vesenið, tímann og pappírsvinnuna sem þarf til þess að stofna félag á Íslandi, og
* að losna við opinbera skráningu á raunverulegum stofnendum félagsins, þar sem stofnendur og núverandi stjórnarmenn eru einu upplýsingarnar sem hlutafélagaskrá birtir.
Í þessari færslu verður reynt að finna allar seríurnar sem stofnaðar hafa verið vegna þessa og tengja skúffufyrirtækin við raunveruleg fyrirtæki í framhaldinu. Þannig munu línurnar í þessari færslu væntanlega tengjast fjölmörgum færslum í tengslanetinu.