LOGOS
Merkar starfsstöðvar: Efstaleiti 5
Ný færsla í seríunni um merkar starfsstöðvar á Íslandi, þar sem ógrynni félaga er til húsa. Oftast er um meira magn kennitalna heldur en rúmast í fermetrastærð hússins:
Nöfnin eru birt með sama fyrirvara og áður, starfsstöð á sama stað og félög með fortíð dugir ekki eitt og sér til þess að brennimerkja félag. Tíminn mun því einn leiða í ljós hvort einhver þeirra félaga sem hér eru skráð hafi eitthvað óhreint í pokahorninu (Q Iceland Holding og Fjölnisvegur 9 eru að sjálfsögðu tvö þekkt félög):
Fjöldaframleidd skúffufyrirtæki endurskoðenda- og lögfræðiskrifstofa
Fjölmargir aðilar hafa tekið að sér að stofna fyrirtækjarunur til þess að selja sem tilbúnar vörur. Ávinningur kaupandans hefur verið álitinn tvíþættur:
* að losna við vesenið, tímann og pappírsvinnuna sem þarf til þess að stofna félag á Íslandi, og
* að losna við opinbera skráningu á raunverulegum stofnendum félagsins, þar sem stofnendur og núverandi stjórnarmenn eru einu upplýsingarnar sem hlutafélagaskrá birtir.
Í þessari færslu verður reynt að finna allar seríurnar sem stofnaðar hafa verið vegna þessa og tengja skúffufyrirtækin við raunveruleg fyrirtæki í framhaldinu. Þannig munu línurnar í þessari færslu væntanlega tengjast fjölmörgum færslum í tengslanetinu.