Tortola

Deeks Associates Ltd.

Deeks Associates Ltd. er eitt af Tortola félögunum, þ.e. félögum sem stofnuð eru á Tortóla og eiga einhvers konar viðskiptasamband við Ísland. Félagið var stofnað til þess að splitta upp "of stórum" hlut Serafin Shipping í Icelandic Group eftir sameiningu SH og Sjóvíkur. Félagið var annað tveggja félaga sem stofnað var á sama tíma og á sama stað í sama tilgangi. Hitt félagið er Fordace Limited.

Fordace Limited

Fordace Limited er eitt Tortola félaganna, þ.e. félaga sem stofnuð hafa verið á Tortóla en átt í einhvers konar viðskiptasambandi við Ísland. Félagið varð til þegar 6% eignarhluta Serafin Shipping í Icelandic Group var skipt upp á milli tveggja félaga til þess að forðast tilkynningaskyldu til Kauphallar á grundvelli 5% reglunnar. Hitt félagið heitir Deeks Associates og var einnig stofnað á Tortóla á sama tíma og Fordace.

Siglo FIJ Limited

Siglo FIJ Limited er eitt af Tortola félögunum, þ.e. félögum skráðum á Tortola sem eiga í einhvers konar viðskiptum á Íslandi eða í tengslum við Íslendinga. Leit á netinu leiðir í ljós að félagið er eigandi að flugvél sem skráð er í loftfaraskrá Flugmálastjórnar Íslands og undir umráðum Icelandair.

 

Eftirfarandi upplýsingar voru sóttar í loftfaraskrána 20. febrúar 2009:

 

Siglo FIU Limited

Siglo FIU Limited er eitt af Tortola félögunum, þ.e. félögum skráðum á Tortola sem eiga í einhvers konar viðskiptum á Íslandi eða í tengslum við Íslendinga. Leit á netinu leiðir í ljós að félagið er eigandi að flugvél sem skráð er í loftfaraskrá Flugmálastjórnar Íslands og undir umráðum Icelandair.

 

Eftirfarandi upplýsingar voru sóttar í loftfaraskrána 20. febrúar 2009:

 

Bergman Investments Limited

2002: Bergman Investments skráður eigandi Millenium Ventures S.A., óskar eftir afskráningu (PDF) félagsins (M.V.)

 

Félagið er skráð með aðsetur að Omar Hodge, Wickhams Cay 1, P.O. Box 362, Road Town, Tortola, British Virgin Islands, eins og fleiri félög.

 

Baffin Island Investment

Leit að félaginu Baffin Island Investment skilar engum marktækum niðurstöðum á netinu. Hins vegar er um Baffin Island að segja að það er sífrerasvæði í Kanada þar sem leitað er að námum af ýmsum tegundum, svo sem úran, demanta og fleira. Einnig er gert út á svæðið sem ferðamannastað.

Syndicate content