Milestone

Merkar starfsstöðvar: Suðurlandsbraut 12

Það hefur sýnt sig að sum hús í bænum bera meiri fjölda kennitalna en önnur. Hér hefur áður verið minnst á Suðurlandsbraut 18, þar sem Fulltingi lögfræðistofa Kristins Hallgrímssonar er til húsa.

 

Í þessari færslu er litið til þeirra fyrirtækja sem skráð eru með starfsstöð að Suðurlandsbraut 12 þar sem Milestone er með höfuðstöðvar.

 

Rétt er að ítreka staðsetning fyrirtækja í húsi Milestone gerir félag ekki sjálfkrafa grunsamlegt, en tíminn mun leiða í ljós hversu mörg þessara félaga munu reynast tengjast þeim bræðrum eða öðrum þeim sem um er fjallað á þessum vef.

 

Fjárfestingafélagið Máttur ehf.

Fjárfestingafélagið Máttur keypti hlut Finns Ingólfssonar (FS7 ehf.) í Icelandair Group.

 

Pr. maí 2006 átti Glitnir 50% hlut í Fjárfestingafélaginu Mætti. Eignaðist 15,6% við söluna á Sjóvá, hafði áður eignast 34,4%. Sjóvá á hinn helminginn í félaginu.

 

Athugasemd á bloggsíðu segir að Gunnlaugur Sigmundsson faðir Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Framsóknarflokksins hafi keypt hlut í Fjárfestingafélaginu Mætti þegar hann seldi Kögun á árinu 2006 - staðfesta.

 

 

Eignir fyrr og nú:

Icelandair Group

Syndicate content