Fjölmiðlar
Kosið um stjórnarskrárákvæði í júní
Einstök álitaefni nýrrar stjórnarskrár verða borin undir þjóðina í atkvæðagreiðslu samhliða forsetakosningunum í sumar. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis vinnur að þessu en ekki er talið að náist að fullvinna stjórnarskrárfrumvarpið í tæka tíð fyrir kosningarnar.
Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag.Bæði Álfheiður Ingadóttir og Róbert Marshall, varaformenn nefndarinnar, telja að hægt verði að fá fram viðhorf þjóðarinnar til mikilvægustu greina stjórnarskrárinnar með atkvæðagreiðslu og meðal þess sem þau telja að hægt verði að greiða atkvæði um eru mál er varða forsetaembættið, samband ríkis og kirkju og eignarhald auðlinda.Fulltrúi Sjálfstæðisflokks í nefndinni, Birgir Ármannsson, segir tillögurnar hins vegar þurfa mun meiri vinnu en svo, að hægt verði að greiða atkvæði um einstök atriði strax í júní.
Leyfir hjónabönd samkynhneigðra
Ríkisstjóri Washington fylkis, Christine Gregoire, tilkynnti í gær að á mánudag muni hún undirrita lög sem leyfi samkynhneigðum að ganga í hjónaband. Washington verður þar með sjöunda ríki Bandaríkjanna til að leyfa hjónabönd samkynhneigðra.
Frumvarpið var samþykkt í fulltrúaþinginu á miðvikudag með fimmtíu og fimm atkvæðum gegn fjörutíu og þremur. Þrátt fyrir að ríkisstjórinn ætli að staðfesta lögin fljótt munu samkynhneigðir í fylkinu þó ekki geta gift sig fyrr en frá og með júní.Andstæðingar laganna hafa lýst því yfir að þeir muni krefjast ógildingar á þeim, með atkvæðagreiðslu samhliða forsetakosningunum í nóvember, en þeir geta hafið undirskriftasöfnun þar að lútandi um leið og búið er að undirrita lögin.
Stórt skref í átt að fullnaðarsigri
Alistair Grétarsson hefur undanfarin ár starfað fyrir UNICEF á Indlandi þar sem lyft hefur verið grettistaki í baráttunni gegn lömunarveiki. Rúmt ár er frá síðasta staðfesta tilfelli, en í samtali við Þorgils Jónsson segir Alistair að alls ekki megi slá s
Fundar með Huang Nubo í Kína
Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Norðurþings, er í Beijing í Kína. Þar mun hann funda með kínverska fjárfestinum Huang Nubo, sem hefur augastað á jörðinni Grímsstöðum á Fjöllum.
Nú þarf að bíða eftir hlákunni
Mokað hefur verið burt snjóhraukum sem talið var að hætta stafaði af í Reykjavík. Hraukarnir hafa hlaðist upp í snjómokstri borgarinnar síðustu vikur.
Hafði aldrei tekið bílpróf
Ökumaður á sextugsaldri var stöðvaður í reglubundnu eftirliti lögreglunnar á Hvolsvelli um síðustu helgi.
Íkveikja í Kópavogi
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var tvívegis kallað til vegna reykræstingar í gærkvöld. Í fyrra skiptið hafði verið kveikt í póstkössum í anddyri fjölbýlishúss við Vallakór í Kópavogi. Eldurinn var lítill og var slökknaður þegar slökkvilið bar að.
Þá kviknaði í þurrkara í kjallaraíbúð við Álfhólsvegi í Kópavogi rétt fyrir miðnætti. Húsráðanda tókst að slökkva eldinn en slökkvilið aðstoðaði við reykræstingu.
Óvænt heimafæðing
Tveir sjúkraflutningamenn tóku á móti sveinbarni sem lá á að komast í heiminn á tólfta tímanum í gærkvöldi. Óskað var eftir sjúkrabíl í Teigahverfið í Reykjavík, þar sem kona var um að bil að fæða sitt þriðja barn og þurfti að komast á fæðingardeild.
Sjúkraflutningamennirnir komust hins vegar rétt svo inn úr dyrunum áður en drengurinn fæddist.Móður og barni heilsaðist vel og sinntu sjúkraflutningamennirnir þeim þar til ljósmóðir frá fæðingardeildinni mætti á staðinn, þar sem ekki þótti lengur ástæða til að flytja móðurina á sjúkrahús.Þeir hafa áður tekið á móti barni en að sögn vaktmanns hjá slökkviliðinu þykir sjúkraflutningamönnum svona útköll alltaf skemmtileg.
Björk aflýsir vegna veikinda
Tónleikum Bjarkar Guðmundsdóttur, sem fara áttu fram í New York í kvöld, hefur verið aflýst vegna veikinda. Þetta kemur fram á vef blaðsins The New York Times en haft er eftir fjölmiðlafulltrúa að enn sem komið er standi til að söngkonan haldi þrenna tónleika í næstu viku.
Tónleikarnir áttu að fara fram í New York Hall of Science í Queens hverfinu.Björk hélt tónleika í borginni síðasta mánudag og föstudag og eru einnig áætlaðir tónleikar á sunnudag, næsta miðvikudag og fimmtudag. Á heimasíðu New York Hall of Science segir einungis að tónleikarnir í kvöld falli niður vegna veikinda og að miðaeigendur geti fengið miða sína endurgreidda.
Aldagamlar hefðir í hættu
Hætta er á að aldagamlar hefðir við veiðar og eggjatöku glatist með friðun fimm tegunda svartfugls. Þetta segir stjórn Drangeyjarfélagsins í bréfi sem sent var umhverfisráðherra og öllum þingmönnum.