Samfylkingin
Verra ef samkoman fýkur öll í heilu lagi.
Gott var að sviðið við Hallgrímskirkju, sem fauk á hliðina í gærkvöldi, fauk ekki fyrr, og enn betra að samkoman öll skyldi ekki hafa fokið.
Þetta segi ég þegar ég minnist þess einstæða viðburðar um hásumarið 1962 þegar heil samkoma á Álfaskeiði í Hrunamannahreppi fauk út í veður og vind í skýstrokki eða hvirfibul, sem gekk yfir svæðið meðan skemmtiatriði stóðu þar sem hæst.
Einmuna veðurblíða var, sól skein í heiði og sjóðandi heitt var lengst af á meðan á samkomunni stóð. Fólk sat í makindum í grasi gróinni brekku og naut skemmtiatriða, sem fóru fram í tjaldi, sem reist hafði verið sem stórt leiksvið.
Aðstæður gátu hreinlega ekki verið betri, stemningin var frábær og allt leit út fyrir einhverja bestu samkomuna, sem þarna hefði verið haldin.
En þá gerðist atburður, sem engan hafði órað fyrir.
Þegar við Árni Ísleifsson undirleikari minn vorum nýbyrjaðir á atriði okkar reif sig skyndilega upp mikill vindstrokkur efst í brekkunni fyrir austan áhorfendasvæðið, og stefndi niður brekkuna beint á sviðstjaldið og veitingatjald við hliðina.
Nokkur atriði i málefnasamning sem veðrur að staldra við
´´Eg vara trúi því ekki að Kópavogsbúar sættii sig við:
Að ljúka eigi skipulagi á Kópavogstúni og hefja sölu á lóðum þar!
Og eins held ég að það geti orðið læti vegna Glaðheimasvæðisins.
Þá held ég að maður seti fyrirvara um upptöku þjónustusamninga við faltaða og endurskoðun á þeirra málum með hagkvæmni í huga.
Held að Íbúar í Lindum eigi eftir að berjast gegn þeirri umferð sem fylgir Glaðheimalandinu sér í lagi ef þar á að reisa blokkinra hvað upp á 40 hæðir eins og Gunnar vill. Svo í þessu sambandi verður athyglisvert að sjá hvort Vilhjálmur af Lista Kópavogsbúa og fulltrúi i skipulagsnefnd fái að kaupa það. En hann gerði jú tilboð fyrir einhverja aðila í þetta land. Það væri jú spilling
Held eins að fólk sætti sig illa við ef að þrengt verður að Kópavogstúni meiria en orðið er sem og umferðinni sem því fylgir.
Gæti orðið árlegt fyrirbæri.
Íslendingar hlutu silfurverðlaun í handbolta í Peking 2008 í því landi mannréttindabrota, alræðis og kúgunar sem Kína er.
Íslendingar sendu íþróttafólk á Ólympíuleikana í Moskvu 1980 á sama tíma sem þar var alræðisstjórn og mannréttindabrot, kúgun og fjöldi fanga við illan kost í Síberíu. Þar á ofan höfðu Rússar ráðist inn í Afganistan til að viðhalda kommúnistastjórn þar.
Nefnum nokkur lönd sem gætu unnið í keppninni og fengju að halda úrslitakeppni Evróvision því að í sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva eru lönd þar sem mannréttindafbrot eru jafnvel daglegt brauð.
Síðast í gær börðu ísraelskir lögreglu- og hermenn Palestínumenn sem vildu gróðursetja tré á eigin landi, sem Ísraelsmenn halda hernumdu í berhögg við ályktun Sameinuðu þjóðanna.
Ástandið er víst ekki alls staðar beysið í löndum í austanverðri Evrópu varðandi mannréttindi.
Meira að segja í okkar landi ríkir ástand í sjávarútvegi sem mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna hafa veitt okkur ákúrur fyrir án þess að neitt hafi verið gert með það.
Úrslit í Evróvision gætu orðið þannig nokkur ár í röð að menn veltu því fyrir sér hvort það ætti að hætta við úrslitakvöldið.
Samhengi hlutanna
Undanfarið hefur umræðan verið undirlögð um lífeyrissjóðina og stjórnir þeirra. Hún hefur í nokkrum veigamiklum atriðum byggst á fullyrðingum sem ekki standast. Skýrsla þeirrar rannsóknarnefndar sem ríkissaksóknari skipaði í er góð og upplýsandi. Þar koma fram margar þarfar ábendingar.
Sumir áberandi álitsgjafa virðist ganga út frá því að þáverandi stjórnum lífeyrissjóðanna hefði verið í lófa lagið að tapa ekki neinu við það kerfishrun, sem varð á Ísland í árslok 2008 og alþjóðlegri efnahagskreppu. Það er svo spurning hversu mikið tapið hefði þurft að vera og örugglega hægt að skrifa langar greinar um það.
Mig langar til þess leggja smá innlegg í þessa umræðu, en á svo sem ekki von á því að það skili sér inn í fréttirnar. Tek það fram að ég var ekki stjórnarmaður á þessum tíma og ég hef aldrei þegið neina ferð á vegum fjármálafyrirtækja eða lífeyrissjóðsins, sama á við um þá stjórnarmenn sem ég starfa með.
Eru eigendur sparifjár skúrkar hrunsins?
Fundir og ferðalög
Bekkurinn var þétt setinn í Egilsbúð í gær. Norðfirðingar létu þingmenn sína heyra það eins og þeim er lagið; samgöngumál einna fyrirferðarmest, enda óvíða verri vegi að finna en einmitt innanbæjar í Fjarðabyggð!
Norðfjarðargöng eru brýnasta stórverkefni ríkisins að mínu mati. Lífshættulegur 630 metra hár fjallvegur á slóðum helstu burðarstoða íslensks atvinnulífs er hneyksli í reynd - og því miður aðeins tímaspursmál hvenær næta stórslys verður á þeim snarbratta og ónýta vegi sem liggur beggja vegna að Oddsskarði.
Norðfjarðargöng verða að fara framar á samgönguáætlun; barátta í þá veru er framundan, jafnt innan þings sem utan. Þar er ég hvergi vígamóður.
Kvöldinu áður sat ég skemmtilegan fund með körlunum á Djúpavogi; var skammaður fyrir að boða fundinn fyrsta þriðjudag í mánuði, því þá er kvenfélagsfundur í plássinu. Umræðan eigraði milli atvinnu- og samgöngumála. Það er annars kraftur á Djúpavogi; nærri 10 prósent íbúanna undir fimm ára aldri sem er auðvitað toppeinkunn fyrir framsækið byggðarlag.
Hélt yfir öræfin í dag, áleiðis til Akureyrar - á ágætlega þíðum jepplingi. Veðrið þannig að það sveif á mig kvæði:
Að berja höfðinu við ísinn.
Þeir sem afneita stórfelldri hlýnun loftslags sýna mikla tregðu sem jafnast á við þá tregðu sem ís og klaki bera í sér þegar hlýnar í veðri.
Þeir fullyrða að vegna þess að íslensku jöklarnir séu enn mun stærri en þeir voru fyrir 800 árum, hafi verið hlýrra hér fyrir 800 árum en er nú.
Þá gleyma þeir alveg þeirri miklu tregðu sem klaki og ís bera í sér.
Dæmi:
Þótt verið hafi alllangur kuldakafli að hausti og jörð alhvít á öllu miðhálendinu eru helstu vötn samt auð miklu lengur en landið í kring. Það er vegna tregðunnar sem býr í djúpu vatni.
Á hinn bóginn er það regla á vorin, að sömu vötn eru ísilögð í 2-3 vikur eftir að vorhlýindin hafa brætt mestallan snjó af landinu í kringum þau.
Í hliðargötunni, sem ég bý við, er enn klaki, tveimur vikum eftir að hlýindakafli brast á, en í haust, þegar kom kuldakast með meiri kulda en nú er, var þar enginn klaki.
Afneitunarmönnum væri trúandi til þess að draga þá ályktun af þessu að það hafi verið hlýrra í kuldakastinu í haust heldur en í hlýindakaflanum nú.
Hjálmari Hjálmassyni og Y listanum tókst að koma fyrri stjórn aftur til valda
Tilgangur þessara örframboða í Kópavogi um breytingar í Kópavogi gjössamlega brostinn. Þau sameiginlega leiða fyrri stjórn nærri óbreytta til valda aftur. Hef heyrt að sennilega verði Ármann bæjarstjóri en Gunnar Birgisson formaður framkvæmdaráðs. Og Ómar formaður bæjarráðs. Svo fær "Y" að vera forseti bæjrarstjórnar. En það er fyrst og fremst að stjórnar bæjarstjórnarfundum. Fólk hlýtur að sjá a þar með er Gunnar kominn í fyrri valdastöðu.
Eldhaf
Eldhafið á nýja sviði Borgarleikshússins er virkilega góð sýning. Umjörðin er mjög vel unnin og styrkir mjög vel þann boðskap sem sýningunni er ætlað að koma á framfæri. Leikmynd Ilmar Stefánsdóttur og myndabandshönnun Arnars Steins Friðbjarnarsonar fá allar þær stjörnur sem í boði eru ásamt lýsingu Þórðar Orra Péturssonar og hljóði Halls Ingólfssonar.
Leikhópurinn stendur sig mjög vel og ætla ekki að gera upp á milli þeirra, þau eru öll mjög góð.
Þau skilaboð sem höfundurinn Waijdi Mouawad er að koma á framfæri þurfa engra útskýringa við, vettvangurinn hefur verið í daglegum fréttum undanfarin ár. Grimmd mannsins, tilgangsleysi átaka og svo hefndarþorstinn sem einkennir mannskepnuna. Áhorfendur komast ekki hjá því að horfa í spegil stóran hluta verksins, og það verður oft óþægilegt, mjög óþægilegt. Verkið er mjög vel skrifað og skilaboðunum er komið til okkar á einfaldan og magnþrungin hátt.
Tilgerðin hefnir sín.
Ég hef aldrei skilið hvers vegna fyrirsætum virðist vera skipað að ganga þannig á fjallháum, mjóum hælum að þær stígi fótunum næstum því í kross fyrir framan hver annan þegar þær rembast við að þóknast einhverjum óskráðum lögum tískuhönnuðanna.
Þar að auki virðist það næstum bannað að aðrar en hálfgerðar renglur komi fram á þessum sýningum eða í myndatökum.
Ekki að undra að sumar þeirra detti þegar þær þurfa að skakklappast þetta áfram á þann hátt, sem er þeim greinilega ekki eðlilegur.
Þetta er nú ljóta vitleysan!
Svona í ljósi þess að Gunnar kemur til með að hafa ægivald yfir þessum meirihluta. Eða einskonar baksætis bæjarstjóri þá hefði ég viljað að Kópavogslistinn hefði heimtað að hafa með sér annan flokk í þetta samstarf. T.d. Næst besta eða Vg. Bara svona til að hér í Kópavogi verði haldið áfram að borga niður skuldir en ekki farið að safna þeim aftur í einhverju byggingarbrálæði.