Sjálfstæðisflokkurinn
Ný ferðavenjukönnun
Ný ferðavenjukönnun fyrir höfuðborgarsvæðið var að koma út. Það eru talsverð tíðindi, enda var síðasta könnun gerð árið 2002. Það er gaman að sjá hvernig íbúar höfuðborgarsvæðisins fara ferða sinna. Ég var að fá könnunina í hendur, en í fljótu bragði sýnast mér þetta vera helstu punktarnir:
* Reykvíkingar ferðast með umhverfisvænni hætti en nágrannasveitarfélögin. Til dæmis fara 67% Seltirninga og Garðbæinga einir á bíl í sínar ferðir, en sem dæmi má nefna að í Miðborginni og Vesturbæ er hlutfallið 50%. Á sama hátt ganga menn og hjóla meira í vesturhluta Reykjavíkur en annarsstaðar.
* 3,8% allra ferða eru farnar á hjóli, en þessi tala var 0,8% árið 2002. Ef aðeins er tekin Reykjavík er talan 4,6%
* Nokkru fleiri eru með bílpróf nú (97%) en árið 2002 (93,7%).
* Í Miðborginni hafa 22% þátttakenda ekki bíl til umráða, sem er hæsta hlutfallið á höfuðborgarsvæðinu. Hlíðarnar koma næstar með 18%, en fæstir eru í þessari stöðu á Seltjarnarnesi, eða 3%.
* 17% heimila í Miðborginni eiga ekki bíl. 13% í Hlíðum og 10% í Vesturbæ. 1% heimila í Garðabæ/Álftanesi eru án bíls.
* 21% heimila á Seltjarnarnesi eiga 4 bíla
Hoppandi hress upp á stól
Hver hefur ekki átt þá stund í lífinu að hann hoppi upp á stól, hristi á sér bossann og lyfti upp höndum? Ég hef átt það, ég hef fylgst með ótrúlegum fjölda fólks gera það, og það er held ég fátt eins gaman og að standa aðeins hærra en hinir í kri...
Fimmtudagur 09. 02. 12
Sinfóníuhljómsveit Íslands flutti 11. sinfóníu Dímítríjs Sjostakovítsj með miklum glæsibrag í kvöld undir stjórn Peters Oundijans.
Björn Valur Gíslason, orðhákur VG, bolsótast yfir því að sjálfstæðismenn og framsóknarmenn skuli að nýju komnir í meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs. Hann beinir reiði sinni einkum að Gunnari I. Birgissyni og Ómari Stefánssyni. Tilgangur Björns Vals er að draga athygli frá þeirri staðreynd að Ólafi Þór Gunnarssyni, bæjarfulltrúa og varaþingmanni VG, mistókst að halda fráfarandi meirihluta á lífi.
Ólafur Þór Gunnarsson er í flokksklíku innan VG með Birni Vali og Steingrími J. Sigfússyni en þeim hefur haldist ákaflega illa á fólki eins og klofningur bæði innan þingflokks VG og bæjarstjórnar Kópavogs sýnir. Yfirgangssemi Björns Vals sem lýsir sér í stóryrðum hans um menn og málefni í von um að geta þannig mulið undir Steingrím J. mælist almennt illa fyrir innan flokksins. Þeir félagar einangrast sífellt meira og meira eftir því flæðir undan þeim.
Uppgjörsþjóðfélagið
Andrúmsloftið á Íslandi er að verða eins og í hjónabandi þar sem þarf að ræða málin á hverjum einasta degi í mörg ár. Uppgjörsiðnaðurinn hefur fest sig í sessi en engin raunveruleg úrlausn mála, dómar, refsing, iðrun og fyrirgefning virðist í au...
Miðvikudagur 08. 02. 12
Í dag ræddi ég við Ragnhildi Helgadóttur, lagaprófessor í Háskólanum í Reykjavík, í þætti mínum á ÍNN. Tilefnið var ný bók Þingræði á Íslandi sem Forlagið gaf út fyrir jólin í tilefni af því að árið 2004 voru 100 ár liðin frá því að þingræði kom hér til sögunnar með heimastjórninni. Þingræðið er spennandi lögfræðilegt álitaefni sem dregur athygli að mörgu í stjórnmálum líðandi stundar og umræðum um breytingar á stjórnarskránni.
Ragnhildur ræddi um hina viðurkenndu lögfræðilegu niðurstöðu að fyrir venju yrðu til ígildi stjórnarskrárákvæða eins og reglan um að dómstólar ákvarði hvort lög samrýmist stjórnarskránni. Hún er hvergi skráð en styðst við venju frá því um 1900. Það er ekki unnt að breyta þessari reglu með venjulegum lögum. Ég spurði hvort ekki mætti líta þannig á að með samþykkt EES-laga tæp 20 ár hefði orðið til stjórnarskrárregla og því væri ekki unnt að líta á samþykkt þessarar laga sem stjórnarskrárbrot eins og Össur Skarphéðinsson hefði sagt. Ragnhildur hafði ekki kynnt sér ummæli Össurar og leiddi því spurninguna um hann hjá sér en lýsti sérstöðu EES-samningsins.
Who's your daddy?
Jón og Gunna sváfu saman og úr varð barn. Gunna kynntist öðrum manni, Palla, á meðgöngunni og þau skráðu sig í sambúð áður en barnið kom í heiminn. Barnið var þar með sjálfkrafa feðrað og er Palli skráður faðir barnsins, þar sem þau voru í skráðri...
Þriðjudagur 07. 02. 12
Í morgun hélt Jón Magnússon hrl. uppi vörnum fyrir mig í hinu furðulega máli sem Jón Ásgeir Jóhannesson hefur höfðað gegn mér vegna ritvillu í bók minni Rosabaugi yfir Íslandi sem hefur verið leiðrétt með afsökun minni. Fyrir Jóni Ásgeiri vakir fyrst og fremst að þagga niður í öllum sem tala ekki um hann opinberlega eins og hann vill; í öðru lagi finnst honum þjóna sérstökum tilgangi að ná þessu markmiði með því valda mér óþægindum – það lýsir ekki miklum stórhug að nota prentvillupúkann í þessum tilgangi.
RÚV sagði ekki rétt frá málavöxtum í hádegisfréttum, ég hringdi í fréttastofuna og bað um leiðréttingu. Ég hef ekki heyrt hana flutta í fréttatíma.
Eftir að hafa horft á Helga Seljan ræða við Ögmund Jónasson innanríkisráðherra í Kastljósi kvöldsins datt mér í hug það sem Haukur Ingi Jónasson sagði við Kolbrúnu Bergþórsdóttur í Sunnudagsmogganum 5. febrúar. Haukur Ingi sagði:
Manndómsvígsla Ögmundar
Eftir að Ögmundur Jónasson hljóp út undan sér á dögunum með því að vilja
fylgja samvisku sinni einni í landsdómsmálinu, þurfti vitaskuld að taka
hann aftur inn í ættbálkinn. Til þess hlaut hann að gangast undir þá
manndómsvígslu, sem er einna algengust í röðum Vinstri grænna. Hún er að
ráðast á skrif Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, en taka fram um leið,
að þau séu látin ólesin.
Í frétt af fundi Vinstri grænna á dögunum skýrði DV
frá því, að Ögmundur hefði þar varað menn við að fylgja fordæmi
Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar og vísa öðrum út í ystu myrkur vegna
ágreinings um eitthvert eitt atriði. Sjálfur hefði hann ekki viljað
kaupa bók hans, Íslenska kommúnista 1918–1998, en blaðað í henni í
bókabúð og þá séð, að menn væru umsvifalaust taldir kommúnistar, væru
þeir ekki sammála höfundi í einu og öllu.
Dagur leikskólans 6. febrúar
Leikskólar um allt land halda upp á Dag leikskólans í dag, 6. febrúar og bjóða aðstandendum leikskólabarna, sveitarstjórnarfólki og öðrum áhugasömum um leikskólastarfið að sækja þá heim.
Ísland er eina landið sem hefur veitt leikskólastiginu þann sess í skólakerfinu að skilgreina hann í lögum sem fyrsta skólastigið í skólakerfinu. Á undanförnum áratugum hefur staða leikskólans í samfélaginu styrkst jafnt og þétt. Lög og námskrár um leikskóla hafa verið skrifaðar til að tryggja leikskólabörnum sem best náms- og uppeldisskilyrði, menntun starfsfólks færð á háskólastig og faglegar kröfur til starfs leikskóla hafa aukist. Gerð er mikil krafa til leikskóla og er ekki annað að sjá en að stjórnendur og starfsfólk þeirra standi vel undir þeim kröfum enda er starfsstéttin metnaðarfull.
Grein um kommúnisma í Grapevine
From Copenhagen, via Moscov and Reykjavik, to Havana
Twists and Turns in the History of the Icelandic Communist Movement
The
Icelandic communist movement started earlier, had closer ties with the
Kremlin, was more influential, and lasted longer, than has previously
been fully recognized. These are the main conclusions of my book, Islenskir kommunistar 1918–1998 (Icelandic Communists, 1918–1998), published in the autumn of 2011 and already provoking heated debate amongst Icelandic historians.